Joao Palhinha hefur gefið í skyn að hann sé að kveðja Bayern Munchen eftir aðeins eitt tímabil með þýska stórliðinu.
Portúgalinn vill sjálfur vera áfram hjá Bayern en er ekki sannfærður um að þjálfarateymið muni gefa sér tækifæri á næsta tímabili.
Palhinha kom til Bayern frá Fulham á síðasta ári en fékk aðeins að spila 17 deildarleiki í vetur og var mikið á varamannabekknum.
,,Við þurfum að sjá hvað gerist, ég hef sagt það nokkrum sinnum að samningur minn er til þriggja ára og ég vil spila fyrir félagið,“ sagði Palhinha.
,,Ég þarf hins vegar að ræða við stjórann og stjórnina um hvort ég geti fengið tækifæri með liðinu – ég vona það innilega.“
,,Ef ekki þá þurfum við að finna lausn á múnum málum. Ég vann titil með Bayern og vona að það hafi verið sá fyrsti af mörgum.“