Bayer Leverkusen hefur áhuga á Jarrel Quansah, miðverði Liverpool. Fabrizio Romano segir frá.
Leverkusen var að missa Jonathan Tah til Bayern Munchen og vill stjóri liðsins, Erik ten Hag, styrkja þá stöðu.
Hinn 22 ára gamli Quansah kom við sögu í 25 leikjum Liverpool í öllum keppnum á leiktíðinni, en er opinn fyrir því að komast í stærra hlutverk.
Á dögunum var fjallað um að Liverpool vildi 50 milljónir punda fyrir Quansah, en ekki er ljóst hvort Leverkusen sé til í að ganga að þeim verðmiða.
Þýska félagið ætti þó að hafa einhverja fjármuni á milli handanna, en félagið hefur selt Jeremie Frimpong og Florian Wirtz til Liverpool, þann síðarnefnda fyrir 127 milljónir punda.