Íslenska landsliðið kemur aftur saman í haust en tveimur vináttuleikjum er nú lokið, góður sigur gegn Skotlandi en taktinn vantaði í tapi gegn Norður-Írlandi.
Arnar Gunnlaugsson þjálfari liðsins hefur nú stýrt því í fjórum leikjum og hefur fengið góð og slæm svör við því sem hann er að reyna.
Blaðamenn 433.is tóku saman nokkra leikmenn sem koma út í plús eftir þennan glugga landsliðsins en aðrir fá mínus í bókhaldið.
Elías Rafn Ólafsson
Var gjörsamlega frábær í leiknum gegn Skotlandi og setur alvöru pressu á þjálfarateymið að taka ákvörðun, verður það Elías eða Hákon sem fær traustið í haust?
Andri Lucas Guðjohnsen
Frábær gluggi hjá Andra sem var besti maður liðsins í leiknum gegn Norður-Írlandi, gefur íslenska liðinu mikið þó hann skori ekki. Spilar hann frammi með fyrirliðanum, Orra? Eða hvað gerir Arnar.
Ísak Bergmann Jóhannesson
Stimplaði sig hressilega inn gegn Skotum með því að stýra spilinu hjá liðinu, kom svo öflugur inn gegn Norður-Írum. Er á hraðri uppleið á ferli sínum og geislar af sjálfstrausti
Sverrir Ingi Ingason
Sannaði það á nýjan leik að án hans getum við ekki verið, yfirburðar besti varnarmaður íslenska landsliðsins.
Hákon Arnar Haraldsson
Það er spurningarmerki yfir því hvort einn okkar allra besti miðjumaður nýtist sem kantmaður, kemst of lítið í boltann. Er bestur þegar hann fær boltann miðsvæðis og getur farið af stað með boltann í svæði sem þar opnast.
Logi Tómasson
Nokkuð er liðið frá því að vinstri bakvörðurinn átti góðan landsleik, félagaskipti til Tyrklands gætu eitthvað hafa truflað kauða í þessu verkefni.
Arnór Ingvi Traustason
Miðað við frammistöður eftir að Arnar tók við gæti svo farið að mínútum Arnórs innan vallar fari fækkandi, fann ekki taktinn í gær.
Aron Einar Gunnarsson
Ekkert út á frammistöðu Arons að setja gegn Skotlandi en spilar aðeins 13 mínútur í þessum glugga, eru það skilaboð frá Arnari inn í haustið að hlutverk hans sé orðið minna en við höfum vanist?