Kevin De Bruyne hefur samþykkt tilboð Napoli og mun ganga í raðir félagsins eftir að gengið hefur verið frá smáatriðum.
Belginn er að yfirgefa Manchester City eftir tíu frábær ár hjá félaginu, en samningur hans er að renna út og verður ekki framlengdur.
Honum er því frjálst að semja frítt við annað félag og verða það Ítalíumeistarar Napoli.
De Bruyne skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á ári til viðbótar. Næst á dagskrá er læknisskoðun áður en hann skrifar undir.
🚨💣 BREAKING: Kevin De Bruyne to Napoli, here we go! Final green light arrives from Belgian star to join Italian champions.
Two year deal + option agreed, medical and formal steps to follow for KDB to become Napoli player.
Massive signing for Napoli, planning for more to come. pic.twitter.com/BNPQzai26r
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 11, 2025