

Kobbie Mainoo mun hafa úr að velja hjá að minnsta kosti 12 félögum ef Manchester United leyfir honum að fara á lán í janúar, eftir að Paul Scholes sakaði Ruben Amorim um að eyðileggja feril enska miðjumannsins.
Scholes kallaði fullyrðingu Amorim um að Mainoo væri byrjunarliðsmaður, algjört „bullshit“, eftir að 20 ára miðjumaðurinn sat enn á ný á bekknum í 1–1 jafntefli gegn West Ham.
Mainoo hefur aðeins byrjað einn leik á tímabilinu, í tapinu gegn Grimsby í Carabao-bikarnum, og spilað 171 mínútu í úrvalsdeildinni í níu innkomum.
Hann er staðráðinn í að yfirgefa Old Trafford í janúar til að berjast um sæti í enska landsliðshópnum fyrir HM, en United hafnaði lánstilboði Napoli í sumar.
Að sögn Daily Mail eru Napoli áfram áhugasamir og þar að auki fjöldi liða frá Englandi, Ítalíu, Spáni og Þýskalandi. Brottför Mainoo gæti þó ráðist af því hvort United tekst að fá miðjumann í janúarglugganum.