fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Endar Bruno Fernandes hjá Barcelona?

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 3. desember 2025 21:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bruno Fernandes hefur á ný verið orðaður við flutning frá Manchester United, á sama tíma og félagið er sagt tilbúið að selja fjóra leikmenn í janúar.

Í sumar var Fernandes sterkt tengdur við Sádi-Arabíu og áttu Al Hilal að hafa gert afar freistandi tilboð, en portúgalski landsliðsmaðurinn kaus að vera áfram á Old Trafford þar sem hann vildi spila á hæsta stigi og berjast um titla.

Þrátt fyrir samning til 2027, með möguleika á árs framlengingu, heldur orðrómurinn áfram og Barcelona er reglulega nefnt sem mögulegur áfangastaður. Gaizka Mendieta, fyrrverandi leikmaður Barca, telur Fernandes myndu falla einstaklega vel að félaginu.

„Hann hefur hæfileikana til að blómstra í La Liga og Barcelona-stuðningsmenn myndu elska hann,“ sagði Mendieta. Hann bendir á að Fernandes gæti verið ósáttur með að spila dýpra í kerfi Ruben Amorim.

Fernandes er að upplagi tíu og hefur verið færður aftar á miðjuna í vetur. United er í 7. sæti eftir 13 umferðir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar

Gæti komið óvænt búbót í bókhaldið hjá United í sumar
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær

Rooney hjólar nokkuð fast í Harry Kane eftir þessi ummæli hans í gær
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Áhugaverð reglubreyting tekur gildi fyrir HM

Áhugaverð reglubreyting tekur gildi fyrir HM
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken

Sjáðu geggjaða afgreiðslu Viktors Bjarka á Parken
433Sport
Í gær

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði

Vilja losna við 9 milljarða fjárfestingu sína eftir aðeins nokkra mánuði
433Sport
Í gær

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni

Viðræður um Rashford í fullu fjöri – Vilja ekki kaupa heldur fá hann aftur á láni