fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Breiðablik Íslandsmeistari eftir frækinn sigur í Víkinni – Halldór Árnason vann titilinn í fyrstu tilraun

Hörður Snævar Jónsson
Sunnudaginn 27. október 2024 20:34

Halldór Árnason, fyrrum þjálfari Breiðabliks. Mynd: DV/KSJ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breiðablik er Íslandsmeistari í knattspyrnu karla eftir magnaðan 0-3 sigur á Víkingi á útivelli í kvöld. Um var að ræða hreinan úrslitaleik.

Breiðablik var betra frá nánast fyrstu mínútu leiksins og virtist meira hungur í þeim en Víkingum, liðið vann fleiri návígi og var ofan á í baráttunni.

Ísak Snær Þorvaldsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks og staðan 1-0 fyrir Blika í hálfleik. Ísak var harður í horn að taka í teignum og hafði betur í návígi við Oliver Ekroth áður en hann setti boltann í netið.

Víkingar byrjuðu seinni hálfleikinn af krafti og voru ógnandi, þeim vantaði hins vegar gæðin á síðasta þriðjung. Eftir pressu Víkinga var það Ísak aftur sem skoraði fyrir Blika.

Ísak var þá fylginn sér í teignum og skoraði af stuttu færi. Það var svo á 80 mínútu sem Aron Bjarnason tryggði 0-3 sigur Blika. Hann fékk fallega sendingu inn fyrir vörn Víkings og vippaði yfir Ingvar Jónsson.

Breiðablik endar tímabilið með 62 stig en Víkingar 59 stig, þetta var fyrsta tímabil Halldórs Árnasonar sem þjálfari liðsins og varð hann Íslandsmeistari með liðið í fyrstu tilraun.

Þetta er í þriðja sinn sem Breiðablik verður Íslandsmeistari í karlaflokki, áður vann liðið titilinn árið 2010 og 2022.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug

Segir þetta helstu hindrunina fyrir Íslendinga – Hvetur Kára til að græja beint flug
433Sport
Fyrir 2 dögum

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal

Segir leikmanni sínum að halda haus eftir orðróma um Arsenal
433Sport
Fyrir 2 dögum

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“

Jóhann segir fréttirnar frá Eyjum merki um vandræðagang – „Það stappar ekki stálinu í neinn“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá
433Sport
Fyrir 2 dögum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum

Skrifa ótrúlega sögu í Íslendingabænum