fbpx
Sunnudagur 10.maí 2026
433Sport

Hólmbert Aron á barmi þess að semja við Preußen Münster

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 26. ágúst 2024 15:56

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt heimildum 433.is er Hólmbert Aron Friðjónsson komin langt í viðræðum við SC Preußen Münster í Þýskalandi.

Hólmbert er án félags eftir að hafa yfirgefið Holstein Kiel í sumar þegar samningur hans tók enda.

SC Preußen Münster leikur í næst efstu deild Þýskalands en þar var Hólmbert einnig með Holstein Kiel og gerði vel.

Framherjinn stóri og stæðilegi hefur skoðað kosti sína í sumar en er nú langt komin með það að ganga í raðir SC Preußen Münster.

Hólmbert var orðaður við KR og Víking hér á landi en hafði ekki áhuga á því að koma heima á þessum tímapunkti.

Hólmbert er 31 árs gamall en hann var hjá Holstein Kiel í þrjú ár en áður var hann hjá Brescia á Ítalíu en hann hefur einnig leikið í Skotlandi, Danmörku og Noregi á ferli sínum.

Íslendingum í þessari sterku deild er því að fjölga því Jón Dagur Þorsteinsson er mættur til Berlin og mun ganga í raðir Hertha Berlin á næstu dögum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool

Faðirinn tjáir sig um stöðu leikmanns Liverpool
433Sport
Í gær

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku

Gerðist í fyrsta sinn í þessari viku
433Sport
Í gær

Sjónvarpskonan sem nú stelur sviðsljósinu – Var áður þjónn og fasteignasali

Sjónvarpskonan sem nú stelur sviðsljósinu – Var áður þjónn og fasteignasali
433Sport
Í gær

Góð tíðindi úr herbúðum Liverpool

Góð tíðindi úr herbúðum Liverpool
433Sport
Í gær

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“

Segir logið til um alvarleg slagsmál – „Ég sló höfðinu óvart í borð“
433Sport
Í gær

Telur að eiginmaður sinn hafi tekið eigið líf eftir að hafa orðið fyrir einelti í starfi

Telur að eiginmaður sinn hafi tekið eigið líf eftir að hafa orðið fyrir einelti í starfi
433Sport
Í gær

Miði á úrslitaleik HM til sölu á vel á annan milljarð

Miði á úrslitaleik HM til sölu á vel á annan milljarð
433Sport
Í gær

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður

Liverpool fylgist með manninum sem United hefur lengi verið á eftir – Verðmiðinn ekki lækkað þrátt fyrir daprar frammistöður