fbpx
Laugardagur 10.maí 2025
433Sport

Veðbankar telja ágætis líkur á að City falli úr ensku úrvalsdeildinni í ár

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 14. ágúst 2024 11:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enska úrvalsdeildin hefst á föstudag en veðbankar telja ágætis líkur á því að Manchester City falli úr ensku úrvalsdeildinni.

115 ákærur á hendur Manchester City verða teknar fyrir um miðjan september og er búist við að yfirheyrslur og rökræður taki tíu vikur.

Veðbankar telja líkur á því að svo mörg stig verði tekin af City að liðið geti hreinlega fallið.

Enska sambandið ákærði City í febrúar árið 2023 fyrir að brjóta 115 sinnum á reglum um fjármögnun félaga.

Times segir frá því að málið verði tekið fyrir um miðjan september og er búist við að vitnaleiðslur taki tíu vikur.

Óháð nefnd mun svo kveða upp dóm sinn en búist er við niðurstöðu í byrjun janúar.

Ljóst er að City gæti átt yfir höfði sér mjög þungan dóm, jafnvel svo þungan að liðið yrði dæmt úr ensku úrvalsdeildinni.

Líkleg til þess að falla:
Leicester – 2/5
Ipswich – 8/11
Southampton – 21/20
Nottingham Forest – 12/5
Everton – 11/5
Wolves – 10/3
Brentford – 5/1
Fulham – 11/2
Manchester City – 6/1

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Sjáðu nýjar EM-treyjur Íslands – Úr endurunnu hráefni og sækja innblástur í hreyfingar Norðurljósanna

Sjáðu nýjar EM-treyjur Íslands – Úr endurunnu hráefni og sækja innblástur í hreyfingar Norðurljósanna
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kynlífsmyndband fór í dreifingu frá stað sem margir Íslendingar kannast við

Kynlífsmyndband fór í dreifingu frá stað sem margir Íslendingar kannast við
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Wirtz áfram efstur á lista City þrátt fyrir fréttir vikunnar

Wirtz áfram efstur á lista City þrátt fyrir fréttir vikunnar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Bakvörður sem Liverpool vill fæst ódýrt í sumar

Bakvörður sem Liverpool vill fæst ódýrt í sumar