fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
433Sport

Ríkharð og Kristján yfirheyrðu Mikael um framtíð sína – „Af hverju ertu að fara í einhverja hringi?“

Helgi Fannar Sigurðsson
Þriðjudaginn 31. október 2023 08:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er enn óljóst hvort Mikael Nikulásson, fótboltaþjálfari og sparkspekingur, verði áfram við stjórnvölinn hjá KFA. Þetta sagði hann í Þungavigtinni.

Mikael þjálfaði KFA síðasta sumar og var hársbreidd frá því að koma liðinu upp úr 2. deild karla.

Í nýjasta þætti Þungavigtarinnar spurðu félagar hans þar, Kristján Óli Sigurðsson og Ríkharð Óskar Guðnason, út í stöðuna.

„Af hverju ertu að fara í einhverja hringi? Við Stjáni erum búnir að hringja austur og allir fyrir austan segja að þú verðir áfram. Af hverju er þetta ekki bara tilkynnt?“ spurði Ríkharð.

Mikael sagði hins vegar að svarið væri að ekkert væri komið á hreint enn.

„Það er ekki komið í ljós enn þá. Það kemur í ljós á næstu dögum en það er ekkert stress. Ég er að koma úr fríi og svo verður þetta bara klárað eða ekki.“

KFA hafnaði í þriðja sæti 2. deildarinnar í sumar með 41 stig, jafnmörg og ÍR sem fór upp. Breiðhyltingar höfðu hins vegar betri markatölu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United

Ofurtölvan stokkar spilin þegar tveimur umferðum er ólokið – Skelfileg niðurstaða Manchester United
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Fundaði einnig með Liverpool

Fundaði einnig með Liverpool
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn

Einn besti leikmaður Tottenham ekki getað æft og er tæpur fyrir úrslitaleikinn
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði

Byrjað að selja miða á landsleikina í næsta mánuði
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir að United verði að losa sig við tíu leikmenn í sumar og nefnir nokkur nöfn

Segir að United verði að losa sig við tíu leikmenn í sumar og nefnir nokkur nöfn
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Segir frá spurningum sem hann fékk frá Bonnie Blue – „Ég væri í fangaklefa ef ég myndi tala svona“

Segir frá spurningum sem hann fékk frá Bonnie Blue – „Ég væri í fangaklefa ef ég myndi tala svona“