fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
433Sport

Forsetinn fær á baukinn fyrir ummæli sín í gær þegar heimurinn fylgdist með – „Af hverju eru karlmenn svona kjánalegir?“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 1. september 2023 12:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Forseti UEFA, Aleksander Ceferin, fær nú á baukinn frá hópi fólks fyrir ummæli sín er hann afhenti Sarina Wiegman verðlaun fyrir að vera þjálfari ársins í kvennaflokki.

Wiegman, sem stýrir enska kvennalandsliðinu, hlaut verðlaunin annað árið í röð. Í fyrra gerði hún liðið að Evrópumeisturum og hafnaði England í öðru sæti á HM í sumar.

„Farðu varlega, bikarinn er þungur,“ sagði Ceferin er hann rétti Wiegman bikarinn.

Þetta hefur vakið reiði netverja.

„Fannst ykkur líka kjánalegt þegar forseti UEFA varaði Wiegman við því hversu þungur bikarinn væri? Mér fannst þetta koma mjög illa út,“ skrifaði einn netverjinn.

„Af hverju eru karlmenn svona kjánalegir þegar kemur að kvennaíþróttum?“ skrifaði annar, en fjallað er um þetta í erlendum miðlum.

Margir tóku í sama streng en auðvitað voru ekki allir sammála.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins

Amorim svarar fyrir sig – Gagnrýnir unga leikmenn félagsins
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar

Vilja safna fyrir launum Jesus og fá hann í janúar
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar

Staðfest að Silva sé á förum – Horfir til HM næsta sumar