fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Starfsfólki KSÍ tilkynnt í dag um meint kynferðisbrot Alberts

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 23. ágúst 2023 14:21

Albert er að eiga frábært tímabil með Genoa, þó aðeins hafi hægst á markaskorun undanfarið. Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ staðfestir í samtali við DV að sambandið hafi fengið ábendingu um að búið sé að kæra landsliðsmann í knattspyrnu fyrir kynferðisbrot.

Samkvæmt heimildum DV er um að ræða Albert Guðmundsson, knattspyrnumann hjá Genoa. Kona hér á landi hefur lagt fram kæru til lögreglu vegna meints brots Alberts á Íslandi í sumar.

„Ég get staðfest að það kom ábending á okkar borð um kæru vegna kynferðisbrots landsliðsmanns,“ segir Vanda í samtali við DV en vill ekki greina frá nafni leikmannsins.

Vanda segir að starfsmönnum sambandsins hafi verið tilkynnt um málið í dag, en samkvæmt reglum KSÍ má ekki velja leikmann í landsliðsverkefni á meðan mál sem þessi eru á borði lögreglu.

Albert snéri aftur í íslenska landsliðið í sumar þegar Age Hareide tók við þjálfun liðsins en Albert hafði ekki verið í hópnum í heilt ár.

Albert er 26 ára gamall en hann var í byrjunarliði Genoa í leik í efstu deild á Ítalíu um liðna helgi. Albert hefur á ferli sínum leikið í Hollandi og nú á Ítalíu í átján mánuði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá