fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Vill sjá fólk sem kvartaði í sumar mæta – „Þetta snýst um stuðning, ekki eintómt blaður“

Helgi Fannar Sigurðsson
Föstudaginn 19. ágúst 2022 13:59

Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari Íslands. Mynd - Sigtryggur Ari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska kvennalandsliðið mætir Hvíta-Rússlandi og Hollandi í gífurlega mikilvægum leikjum í undankeppni Heimsmeistaramótsins 2023 í næsta mánuði.

Sigri Ísland Hvít-Rússa verður liðið með pálmann í höndunum, á toppi undanriðilsins, fyrir leikinn gegn Hollendingum. Eitt lið fer beint á HM og fer annað sætið í umspil.

„Þetta leggst vel í mig. Ég er bjartsýnn og hef fulla trú á að við gerum það sem til þarf til að komast áfram,“ segir Þorsteinn Halldórsson, þjálfari Íslands, í viðtali við 433.is

Hann vill sjá góðan stuðning í heimaleiknum gegn Hvít-Rússum. Leikurinn gegn Hollandi er leikinn ytra.

„Ég vonast til að fólk mæti og styðji við liðið, að allir sem voru að tjá sig um það að það hafi ekki verið spilaður heimaleikur áður en við fórum á EM, að þau mæti allavega núna, geri hlutina almennilega, að fólkið sem er að tjá sig endalaust láti sjá sig á vellinum. Þetta snýst um stuðning, ekki eintómt blaður.“

Ísland tók þátt í lokakeppni EM á dögunum. Liðið gerði jafntefli í öllum leikjum sínum í riðlakeppninni og komst ekki áfram.

„Ég held algjörlega að leikmenn noti þau sárindi sem við upplifðum eftir að hafa ekki komist upp úr riðlinum, það ýti enn meira við okkur í að taka næsta skref,“ segir Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum