fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Þórhallur veður í Helga Seljan og sakar hann um vanvirðingu – „Ég hafði álit á Helga Seljan en það minnkaði stórkostlega“

433
Föstudaginn 12. ágúst 2022 10:49

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Arnar Grétarsson, þjálfari KA, var á dögunum dæmdur í fimm leikja agabann fyrir hegðun sína á leik KA gegn KR í síðustu viku og orð sem hann lét falla í garð Sveins Arnarssonar, fjórða dómara leiksins.

Hjá KA eru menn allt annað en sáttir með lengd bannsins.

Arnar kallaði Svein „fokking fávita“ í leiknum. Þá sagði Fótbolti.net frá því á dögunum að leiðir Arnars og Sveins hafi legið saman degi eftir leik þar sem Arnar hafi „veist að“ Sveini.

Ekki er vitað hvort atvikið daginn eftir leik hafi spilað inn í ákvörðun Aga- og úrskurðanefndar KSÍ um að setja Arnar í fimm leikja bann.

„Virðist sem KSÍ byggi bannið á atviki sem gerðist deginum eftir að leik lauk. Galið fordæmi svo vægt sé tekið til orða,“ skrifaði Runólfur Trausti Þórhallsson, blaðamaður Vísis, á Twitter á dögunum.

Helgi Seljan á Stundinni svaraði þessu. „Af hverju er galið fordæmi að láta manninn axla ábyrgð á því að haga sér eins og hortugur, frekur smákrakki, við dómara, fyrst í leik og svo með að veitast að honum degi seinna á svæði félagsins sem hann starfar fyrir sem glorified leikfimikennari?“

Málið var til umræðu í hlaðvarpsþættinum Mín skoðun í gær. Þar gagnrýndir fyrrum knattspyrnumaðurinn Þórhallur Dan Þórhallsson Helga harkalega fyrir vanvirðingu í garð Arnars.

„Ég sá þessa færslu hjá Helga Seljan. Hversu dapurt er það að svona virtur fréttamaður eins og Helgi Seljan sé að gera lítið úr starfi Arnars með því að kalla hann „glorified“ leikfimikennara?“ Sagði Þórhallur.

„Þetta er svo dapurt. Hann má hafa þá skoðun sem hann vill á málinu, en að gera lítið úr starfinu hjá Adda, starf knattspyrnuþjálfara er svo ótrúlega viðamikið. Þú ert með 24-30 leikmenn plús sem þú ert að hugsa um, hugsa um æfingarnar, andstæðinga, skoða þrjá til fjóra leiki aftur í tímann og greina þá. Það er í besta falli hlægilegt að koma svona fram. Og af svona manni eins og Helga Seljan, sem er virtur blaðamaður á Íslandi.“

„Ég hafði álit á Helga Seljan en það minnkaði stórkostlega þegar ég las þetta.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“

Tóku Jóa Kalla og Hafnfirðinga til bæna vegna uppákomunnar á föstudag: „Hann gat ekki sætt sig við að Fylkismenn myndu ekki láta hann bully-a sig“
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu

Liverpool gæti íhugað sölu – Áhugi frá Ítalíu
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti

Rice fór meiddur af velli – Stuðningsmenn vonast til að færsla hans sé góðs viti
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?

Myndband: Uppákoma í Garðabæ um helgina vekur athygli – Hvað sagði Samúel sem gerði allt vitlaust?
433Sport
Í gær

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“

Lýsa þungum áhyggjum af stöðu mála í Hafnarfirði – „Þegar það verða svona læti er það slæmt“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling

Van Persie reiður yfir óviðeigandi umræðu um Sterling
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna