fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
433Sport

Tómasi blöskrar ákvörðun KSÍ – ,,Þeir koma fram við konur verr en hunda“

433
Sunnudaginn 12. júní 2022 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eins og frægt er þá mun Ísland spila við Sádí Arabíu í nóvember en liðin munu spila vináttulandsleik í Abu Dhabi í nóvember.

Það er í raun ákvörðun sem margir telja óskiljanlega en eins og flestir vita þá Sádí Arabía það land sem gerir sig sekt um fleiri mannréttindabrot en allar aðrar þjóðir heims.

Þrátt fyrir það ákvað íslenska Knattspyrnusambandið að samþykkja beiðni um vináttulandsleik og er það að öllum líkindum peningana vegna.

Það var rætt þetta mál í útvarpsþætti Fótbolta.net á föstudag og þá ákvörðun Vöndu Sigurgeirsdóttur og KSÍ að játa boði þjóðarinnar um að spila landsleik.

Blaðamaðurinn Tómas Þór Þórðarson var harðorður í garð Vöndu og KSÍ og setur stórt spurningamerki við gildi KSÍ og hvað sambandið er að auglýsa með því að samþykkja að taka þátt í þessu verkefni.

Tómas ræddi þetta mál í útvarpsþætti Fótbolta.net á föstudag en hann og Elvar Geir Magnússon fóru yfir málin.

,,Heyrðu við erum sem þjóð að fara taka bara virkan þátt í einum mesta íþrótta hvítþvotti heims þessa dagana og spilum við Sádí-Arabíu og enginn segir neitt? Er ekki allt í lagi eða?segir Tómas í þættinum.

,,Ég veit ekki alveg hvar maður á að byrja með þetta. Ég er ekki maður sem mætir á einhver mótmæli og hef ekki mikið fyrir mér í svona málum en ef ég væri yfir knattspyrnusambandi Íslands og hefði fengið boð um það að spila við Sádí Arabíu í dag.. Annað hvort svararðu ekki póstinum eða segir bara nei.“

,,Þetta er bara basically versta þjóð heims í dag, mannréttindi eru ekki til þarna, þeir koma fram við konur verr en hunda. Þetta eru menn sem stunda aflimanir á föstudögum. Hefur fólk hjá KSÍ aldrei séð sjónvarpsþátt eða lesið blað? Hvað er í gangi?“

,,Vanda Sigurgeirsdóttir mætir þarna inn og tekur strax á mesta vandamálinu sem var þá í gangi, kynferðisbrot og það sem var í gangi, það sem felldi Guðna og stjórnina og gerði það listavel. Hún sýnir að það séu nýir tímar hjá KSÍ, við stöndum algjörlega með þolendum, tökum þetta regluverk alveg í gegn og gerum þetta almennilega. Við ætlum að vera nútíma knattspyrnusamband sem hugsar um þessi mál.“

,,Svo snýr hún þessu við og basically segir að knattspyrnusamband Íslands styðji ekki við kvennréttindi því við erum að fara spila leik við Sádí Arabíu. Hún afsakar það með því að hún ætli að halda ræðu og taka í höndina á þeim og sýna að Ísland sé með formann og varaformann sem eru allar konur sem er besta mál. Aftur vil ég benda á það að þetta eru menn sem hafa myrt menn, og fullt af fólki. Þeir eru að stunda mesta sports washing sem sést hefur í heiminum núna, bæði með að kaupa Newcastle United þar sem þeir komust í gegnum það. Það stoppaði ekki mikið þar svo ég held að KSÍ sé ekki að fara stoppa mannréttindabrot þeirra mikið.“

,,Við erum að leggja gildin okkar hvað varðar almenn mannréttindi til hliðar því við höfum ekki efni á að spila við annað en Sádí Arabíu. Í staðinn ætlum við að stara Sádana niður. Ég hélt frekar að hún hefði fengið póst um að spila við Sádí Arabíu og bara hlegið og sagt nei takk. Mér finnst þetta ótrúlegt.“

Hlusta má á þáttinn í heild sinni hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar

Guardiola vill hollenskan miðjumann í sumar
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Hefur ekki neinn áhuga á því að fara frá Liverpool í sumar

Hefur ekki neinn áhuga á því að fara frá Liverpool í sumar
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“

Segir frá einkennum af hræðilegri flensu sem hann fékk á dögunum – „Ég hélt að á næstu mínútum myndi ég bara deyja“
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe

Brjálaður á Bernabeu og vill burt – Pirraður á komu Bellingham og Mbappe
433Sport
Í gær

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist

Amorim hótar að hætta – Mourinho líklegastur til að taka við ef það gerist
433Sport
Í gær

Viðbúið að viðbrögðin yrðu svona og Trent þarf að takast á við það

Viðbúið að viðbrögðin yrðu svona og Trent þarf að takast á við það