fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Áfall í Garðabæ – Hilmar Árni fór í aðgerð og spilar ekki meira á þessu ári

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 9. mars 2022 09:15

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hilmar Árni Halldórsson stjörnuleikmaður Stjörnunnar fór í aðgerð fyrir helgi þar sem það fékkst staðfest að krossband hans væri slitið.

Hilmar Árni sleit krossbandið í Boganum á Akureyri þar sem Stjarnan lék í Lengjubikarnum. Forráðamenn Stjörnunnar hafa gagnrýnt það mjög að leikurinn hafi farið fram þar. Grasið í Boganum er sagt stórhættulegt.

„Það er rétt, hann fór í aðgerð í síðustu viku. Þá er krossbandið slitið og hann fór í aðgerð, hann verður frá í níu eða tíu mánuði,“ sagði Ágúst Gylfason þjálfari Stjörnunnar við 433.is.

Ljóst er að áfallið er gríðarlegt fyrir Stjörnuna en Hilmar hefur verið einn allra besti leikmaður deildarinnar síðustu ár. Eftir erfitt síðasta tímabil virtist Hilmar vera að finna sitt besta form nú þegar rétt um 40 dagar eru í BEstu deildina.

„Þetta er gríðarlegt áfall. Verst fyrir Hilmar sjálfan auðvitað, hann var búinn að vera á eldi með okkur í vetur. Við reynum að fá hann inn í teymið á einhvern hátt,“ segir Ágúst en ljóst er að Hilmar tekur ekkert þátt í Bestu deildinni á þessu ári og spilar ekki fótbolta fyrr en á næsta ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá