fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Barnabarn Guðjóns var í hópi landsliðsmanna sem voru kallaðir nauðgarar í göngutúr í gær: ,,Ekkert til saka unnið“

Helgi Fannar Sigurðsson
Mánudaginn 6. september 2021 18:32

Guðjón Þórðarson.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenska karlalandsliðið var í göngutúr á leikdegi í  Reykjavík í gær er hópur fólks hrópaði á þá og kallaði þá nauðgara. Mikil umræða hefur verið um KSÍ síðustu vikurnar og féll stjórnin og formaðurinn sagði af sér. Sambandið hefur verið sakað um að hylma yfir meint kynferðisbrot landsliðsmanna. Guðjón Þórðarson er afi Ísaks Bergmann Jóhannessonar sem var með landsliðinu í göngutúrnum þegar atvikið átti sér stað. Guðjón tjáði sig um þetta í hlaðvarpsþættinum The Mike Show.

,,Það sem alvarlegast er ef þetta fer að stórskaða hreyfinguna og ekki bara hreyfinguna heldur fjölskyldur lítilla barna sem að standa frammi fyrir erfiðleikum,“ sagði Guðjón um umræðuna um KSÍ og landsliðið undanfarið.

Hann sagði Ísak hafa verið hluti leikmanna sem urðu fyrir hrópunum og köllunum frá fólki í Reykjavík í gær.

,,Hann hefur fengið þessa gusu ásamt mörgum öðrum sem að hafa ekkert til saka unnið og eru ekki annað heldur en með lífstíl upp á punkt og prik, upp á tíu.“

Guðjón segir jafnframt að þeir leikmenn sem eru í landsliðshópnum sem stendur stundi lífstíl sem sé til fyrrimyndar. Kynslóðaskipti eiga sér stað í landsliðinu þessi misserin.

,,Þessir strákar sem eru þarna núna, sem mynda framtíðarkjarna landsliðsins, þetta eru strákar sem hafa stundað lífsstíl sem er öðrum til eftirbreytni.“

Ísak Bergmann Jóhannesson. Mynd/Anton Brink
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum