fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Segir að Mo Salah hafi skorað sjálfsmark með daðri sínu í gær

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 31. mars 2021 10:30

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Dominic King blaðamaður hjá Daily Mail segir að Mohamed Salah hafi skorað sjálfsmark með því að daðra við Real Madrid, átta dögum fyrir leik liðanna í Meistaradeildinni.

Salah sóknarmaður Liverpool fór í viðtal á Spáni í gær og útilokar ekki að spila á Spáni innan tíðar en samningur hans við Liverpool gildir til ársins 2023. Salah hefur reglulega daðrað við það að fara til Real Madrid. „Ég vonast eftir því að spila í mörg ár til viðbótar,“ sagði Salah í viðtali við spænska fjölmiðla.

Þegar Salah var spurður að því hvort hann hefði áhuga á að spila á Spáni. „Af hverju ekki? Það veit enginn hvað gerist í framtíðinni. Einn daginn kannski, það er ekki alveg undir mér komið. Við sjáum hvað gerist á næstunni en ég vil ekki tala of mikið.“

King tekur orð Salah fyrir í grein sinni á vef Daily Mail í dag. „Salah skoraði sjálfsmark með því að daðra við Real Madrid átta dögum fyrir leik liðsins gegn Liverpool,“ skrifaði King.

Liverpool og Real Madrid mætast í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. „Liverpool hefur engan áhuga á að selja hann og þetta hjálpar honum ekki í samningaviðræðum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá