fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

COVID-19 smit í herbúðum FH – Allir í sóttkví þrátt fyrir að farið hafi verið eftir reglum

Hörður Snævar Jónsson
Þriðjudaginn 30. mars 2021 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Allur leikmannahópur meistaraflokks FH hefur verið sendur í sóttkví vegna smits sem kom upp hjá leikmanni félagsins. Þetta staðfestir Valdimar Svavarsson formaður knattspyrnudeildar FH í samtali við 433.is.

Smitið greindist í gær en erfiðlega hefur gengið að rekja upprunan á smitinu hjá umræddum leikmanni.

„Það kom upp í gær að einn leikmaður greindist með veiruna, það er búið að vera mikið í gangi í Hafnarfirði undanfarið,“ sagði Valdimar um málið.

FH-ingar hafa æft í tíu manna hópum síðustu daga en passað upp á allar reglur, þrátt fyrir það var allur leikmannahópur liðsins sendur í sóttkví fram yfir páska.

„Við vildum bregðast við þannig að þó að við séum að æfa í hólfum og allt það, þá settum við allan hópinn í sóttkví fram yfir páska, þannig að við séum öryggir. Við viljum ekki stuðla að frekari útbreiðslu, fyrst að það eru páskar og smá frí. Þá tökum við enga sénsa,“ sagði Valdimar.

Valdimar segir að ekki sé hægt að útiloka að leikmenn ræði saman utan æfinga og því hafi allur hópurinn verður sendur í sóttkví. „Maður getur aldrei útilokað smá tengsl á milli, við vonum að þetta sé ekkert. Það er ekkert vitað hvaðan þetta smit kom, hann fór strax í skimun þegar það voru einhver einkenni,“ sagði Valdimar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta

Carrick ræðir framtíð Maguire og vonar það besta
433Sport
Í gær

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard

Lögreglan leitar að glæpamanni sem líkist Steven Gerrard
433Sport
Í gær

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað

Segir kostulega sögu af því þegar hann hitti Maradona á veitingastað
433Sport
Fyrir 2 dögum

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf

Þénaði 18 milljónir á viku en á í vandræðum í dag – Glímir við þunglyndi og tók því þetta starf
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur

Kemur með áhugaverðan punkt um Gylfa Þór – Staðan sé nú allt önnur
433Sport
Fyrir 2 dögum

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá

Munu ekki samþykkja sama hvernig seðlum verður veifað framan í þá