fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024
433Sport

Enn bætist í smit hjá Ítölum sem komu til landsins í gær – Leikur við Ísland í dag

Hörður Snævar Jónsson
Föstudaginn 9. október 2020 09:07

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrír aðilar í U21 árs landsliði Ítalíu greindust með COVID-19 veiruna við komuna til Keflavíkur í gær. Þetta staðfestir ítalska sambandið.

U21 árs lið Ítalíu á leik gegn Íslandi á Víkingsvelli klukkan 15:30 í dag í undankeppni EM.

Um er að ræða tvo leikmenn og einn úr starfsliði Ítala en annar leikmaðurinn er með einkenni. Ítalar segja að allir þessir aðilar hafi farið í skimun á Ítalíu en ekki greinst með veiruna.

Tveir leikmenn Ítala höfðu greinst með veiruna fyrr í vikunni og því voru þeir teknir út úr hópnum. Ítalska sambandið segist nú vinna málið með UEFA og yfirvöldum á Íslandi.

Ekki er öruggt að leikurinn fari fram en frekari upplýsingar eru væntanlegar á næstu klukkustundum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“

Kristófer Acox viðurkennir að hafa tekið umdeilda ákvörðun – ,,Hægt og rólega var ég kominn svo djúpt inn í þetta“
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag

Kane fær sín fyrstu verðlaun sem leikmaður Bayern í dag
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart

Segir frá ferð með Eiði Smára – Þetta kom á óvart
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“

Virðist gefa ýmislegt í skyn með nýju myndbandi – ,,Loading…“
433Sport
Í gær

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur

Íþróttavikan einnig í hlaðvarpi – Hlustaðu á nýjasta þáttinn þar sem Auðunn Blöndal er gestur
433Sport
Í gær

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?

Langskotið og dauðafærið – Græðir þú pening um helgina?