Jurgen Klopp hefur framlengt samning sinn við Liverpool til ársins 2024. Þetta var staðfest í dag. Klopp skrifaði undir í dag en það gera aðstoðarmenn hans einnig, Liverpool vann Meistaradeildina í sumar og mun að öllum líkindum vinna ensku úrvalsdeildina, næsta vor. Klopp hefur náð að vekja þennan stóra risa af værum blundi, gamla stórveldið Liverpool er að komast á toppinn aftur. ,,Þetta er yfirlýsing um okkar vilja, þetta er mín hugmyndafræði. Við höfum náð árangri og viljum gera meira,“ sagði Klopp.
,,Ég tel að framlag mitt geti orðið meira, þegar ég sé hvernig samstarf okkar hefur þróast.“
Nú eftir hádegi fékk svo Klopp verðlaun sem besti knattspyrnustjóri í nóvember, í ensku úrvalsdeildinni.
Þá var Sadio Mane, útnefndur besti leikmaðurinn en hann var magnaður með Liverpool í nóvember.