fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
433Sport

Er þetta ofmetnasti þjálfari heims? – Tækifærin að renna út

Victor Pálsson
Mánudaginn 22. apríl 2019 10:10

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Frank de Boer er mjög umdeildur knattspyrnustjóri en hann starfar í dag fyrir lið Atlanta United í Bandaríkjunum.

De Boer tók við Atlanta fyrir þessa leiktíð en liðið varð meistari á síðasta tímabili og spilaði mjög vel.

Gengið undir De Boer hefur hins vegar verið slakt og situr Atlanta í neðsta sætinu í sinni deild með aðeins fimm stig eftir sex leiki.

Liðinu hefur þá einnig aðeins tekist að skora fimm mörk í sex leikjum og hefur fengið á sig átta.

Hollendingurinn náði flottum árangri með Ajax í heimalandinu og stýrði liðinu frá 2010 til 2016 og vann deildina fjórum sinnum.

Eftir þá dvöl hefur ekkert gengið hjá De Boer sem tók við Inter Milan á Ítalíu og svo síðar Crystal Palace á Englandi áður en hann hélt til Bandaríkjanna.

De Boer entist í starfi hjá Inter í aðeins 85 daga og var svo rekinn eftir tíu vikur hjá Palace eftir hörmulega byrjun.

Atlanta tapaði 2-1 heima gegn FC Dallas í gær og ef liðið fer ekki að ná í sigra þá gæti De Boer fengið sparkið enn eina ferðina eftir stutt stopp í starfi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan

Íslenska liðið undirbýr sig af kappi á Spáni – Risastór vika framundan
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann

Útlit fyrir slag Manchester-liðanna um fokdýran miðjumann
433Sport
Fyrir 2 dögum

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“

Kom með áhugaverða spá fyrir sumarið – „Það er engin sérstök lógík á bak við það“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar

Útilokar ekki að taka við Tottenham í sumar
433Sport
Fyrir 2 dögum

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna

Moyes kallar eftir því að tekið verið á skítabrögðum eftir umræðuna
Sport
Fyrir 2 dögum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum

Trúir ekki öðru en að þetta gjörbreytist í Vesturbænum