fbpx
Sunnudagur 03.maí 2026
433Sport

Ætlaði að drepa manninn sem skuldaði honum peninga: ,,Það munaði millisekúndum“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 16. mars 2019 18:01

Van den Hauwe er hér til vinstri.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pat van den Hauwe, fyrrum leikmaður Everton og Tottenham, átti farsælan feril sem knattspyrnumaður.

Þessi fyrrum landsliðsmaður Wales hóf ferilinn með Birmingham en lék síðar með Everton og Tottenham við góðan orðstír.

Ferill varnarmannsins var á mikilli niðurleið árið 1993 er Ossie Ardiles, þáverandi stjóri Tottenham, reyndi ítrekað að koma honum burt frá félaginu.

Van den Hauwe samdi við Millwall í kjölfarið þar sem lítið gekk upp og lagði hann svo skóna á hilluna ekki löngu seinna.

Eftir ferilinn byrjaði Van den Hauwe að selja eiturlyf en hann var þá búsettur í Suður-Afríku.

Hann opnaði sig í viðtali við the Daily Mail í dag þar sem hann greinir frá því að hann hafi verið nálægt því að fremja morð stuttu eftir að skórnir fóru í hilluna.

,,Ég var næstum því búinn að skjóta mann. Vegna hrokans í honum og vegna þess að hann neitaði að borga mér peninginn sem ég hafði lánað honum,“ sagði Van den Hauwe.

,,Ég var að fá mér drykki með vinum mínum þegar hann mætti. Ég öskraði: ‘Hvenær ætlaru að borga mér? Það eru liðnir margir mánuðir.’

,,Hann svaraði: ‘Hvað ætlarðu að gera í því?’ – ég vissi að hann væri með svarta beltið í karate. Átti ég að sveifla höndunum í átt að honum?“

,,Ekki séns. Ég labbaði upp að honum og miðaði byssu að höfði hans. ‘Hvar eru peningarnir mínir?’

,,Ég þurfti ekki að taka fast í gikkinn. Ég hefði sprengt á honum hausinn. Ef ég hefði gert það þá væri ég enn í fangelsi.“

,,Ef eitthvað hefði gerst á þessari stundu eða ef hann hefði reynt að ráðast á mig þá hefði ég skotið hann. Það munaði millisekúndum. Þetta breytti lífi mínu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Í gær

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“

Segir fólk í Garðabænum skiptast í fylkingar – „Það er enginn millivegur“
433Sport
Í gær

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“

Ræddi lygilega atburðarás í Kópavogi – „Engin gæsla og menn fóru að skiptast á höggum“
433Sport
Fyrir 2 dögum

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður

Eru með verðmiða í huga og ætla ekki í neitt stríð ef það verður
433Sport
Fyrir 2 dögum

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar

Tveir á blaði til að fylla í skarð Glasner í sumar