fbpx
Miðvikudagur 17.desember 2025
433Sport

Forsíður enskra blaða gera grín að afsökunum Klopp: Líkt við mann sem fór á taugum

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 4. mars 2019 11:34

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það var boðið upp á fjörugan leik á Goodison Park í gær þegar Liverpool heimsótti Everton og var ekkert gefið eftir í skemmtilegum grannaslag.

Bæði lið fengu færi til að skora í gær og þá sérstaklega Mohamed Salah sem var ekki heitur fyrir framan markið. Því miður fyrir áhorfendur komu mörkin ekki en það vantaði þó alls ekki færin.

Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn fyrir heimamenn í Everton og stóð sig vel á miðjunni.

Eftir leik fór Jurgen Klopp að kenna vindinum á Goodison Park um slakan leik. ,Þetta var mjög erfiður leikur og það eru nokkrar ástæður fyrir því,“ sagði Klopp eftir leikinn.

,,Ég veit að fólki líkar ekki við þegar ég nefni þetta en vindurinn kom úr öllum áttum, boltinn var mikið í loftinu.“

Manchester City vann sigur á Bournemouth um helgina og er nú komið á topp deildarinnar, munar einu stigi á toppliðunum og níu leikir eru eftir, 27 stig í pottinum.

Þá eru sumir farnir að líkja Klopp við Kevin Keegan sem fór á taugum í titilbaráttu með Newcastle árið 1996.

,,Fannst þér við ekki taka nógu mikla áhættu í dag? Ég var með bakverði sem eru kantmenn, sóknarmann í vörninni og markmaðurinn er miðjumaður á æfingum. Fótbolti er ekki skák,“ sagði Keegan árið 1996 og Klopp fór í svipaða hluti í gær, þá var hann spurður um sóknarleik liðsins.

,,Fannst þér við ekki taka nógu mikla áhættu í dag? Ég er svekktur með þessa spurningu, heldur þú að þetta sé Playstation? Fótboltinn er ekki þannig að allt breytist við að setja inn sóknarmann. Við förum ekki á taugum eins og þú,“ sagði Klopp í gær.

Liverpool er hins vegar bara stigi á eftir City og 27 stig eru í pottinum. Liverpool á því góðan möguleika á að vinna deildina í fyrsta sinn í 29 ár.

Forsíður enskra blaða má sjá ér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum

Bruno Fernandes daðrar við Spán og Ítalíu – Heldur áfram að vekja athygli með ummælum sínum
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham

Fer líklega til Bandaríkjanna en ekki í faðm Messi og Beckham
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla

Forsætisráðherra til í að fara með Abramovich fyrir dómstóla
433Sport
Fyrir 9 klukkutímum

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar

Opnar sig um áhuga Manchester United í sumar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum
Góð tíðindi af Orra
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“

Valtýr hellir sér yfir mann sem kom til Íslands á dögunum – „Það á bara að snúa honum við og senda hann úr landi“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Fer frítt frá Liverpool

Fer frítt frá Liverpool
433Sport
Í gær

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu

Fullkrug fer líklega á láni til Ítalíu
433Sport
Í gær

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift

Lýsir miklum vonbrigðum eftir að samningnum var óvænt rift