Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, gat ómögulega munað nafn Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns Vinstri grænna, þegar hann var í ræðustól Alþingis og kallaði hann ýmist Óttarr, Proppéson eða Kolbein Óttarr Proppé. Kolbeinn tók þetta ekki óstinnt upp og kallaði til Jóns Þórs að hann mætti kalla sig herra Proppé. Örugglega skemmtilegasta stund dagsins á þeim þingdegi.