Valur Grettisson blaðamaður á dv.is setti færslu inn í Facebook-hópinn Fjölmiðlanördar, í gær. Tilefni færslunnar var að Ólafur Sívertsen var að skrifa á vef Hringbrautar. Þessi Ólafur er ekki til og siðanefnd Blaðamannafélagsins rassskellti Hringbraut nýlega fyrir skrif þessa nafnleysingja. Mynd af Birni Þorlákssyni var komin í stað myndar af Ólafi heitnum. Valur skrifaði í færslunni:
„Er gátan um Ólaf Sívertsen leyst? Annars eru þessi viðbrögð gagnvart úrskurði siðanefndar til fyrirmyndar hjá Hringbraut. Geri ráð fyrir að það verði skerpt á þessu viðhorfi í bókinni Mannorðsmorð 2.“