fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Það er vel tekið á móti fermingarbarninu í Galleri 17

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 23. febrúar 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við leggjum mikla áherslu á að taka vel á móti fermingarbörnunum og foreldrum þeirra og veita þeim góða þjónustu. Þetta er mikilvæg stund á ævi unglingsins og til dæmis eru strákar oft að velja þarna sín fyrstu jakkaföt. Þá þarf líka að leiðbeina þeim um hvernig maður ber sig að, til dæmis hvernig jakkanum er hneppt,“ segir Sölvi Magnússon, sem er rekstrarstjóri hjá Galleri 17 ásamt Maríu Einarsdóttur.

NTC rekur margar tískuvöruverslanir á höfuðborgarsvæðinu, þar meðal Galleri 17, sem er bæði í Kringlunni og Smáralind. Í Galleri 17 er afar mikið úrval af flottum fermingarfatnaði og allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

„Fermingartískan hefur sjaldan verið eins fjölbreytt og í ár. Hjá strákunum er skemmtilegt samspil á milli klassísks fatnaðar og þess sem kallað er „streetwear“. Sumir velja flotta fatasamsetningu en aðrir eru í klassískum jakkafötum. Við skyrturnar eru ýmist notuð bindi eða klútar og svo eru rúllukragabolir að koma mjög sterkir inn. Vinsælt er að vera í strigaskóm við jakkafötin, til dæmis frá Nike eða Vans. Svo eru margir sem ætla að nýta skóna sem hversdagsskó eftir ferminguna,“ segir Sölvi.

Að sögn Maríu hefur fjölbreytnin aukist hjá strákunum en fermingarfötin á stelpurnar eru samt ennþá fjölbreyttari:

„Samfestingar eru mjög vinsælir, líka blúndukjólar og ýmsir stílhreinir kjólar í ljósum litum. Úrvalið af skóm er rosalega fjölbreytt. Sumar velja einfalda hæla á meðan aðrar sækja í gróf stígvél frá Dr. Martens og enn aðrar hvíta strigaskó frá Nike eða Buffaló-skó.“

Meðal vinsælla merkja í fermingarfatnaðinum eru Moss Reykjavík, Made, Cheap Monday og SamsØe SamsØe.

Stór stund að velja fermingarfötin

„Sumir afgreiða sitt á stuttum tíma á meðan aðrir vilja koma oft og taka sér tíma í að máta,“ segir Sölvi, en það er stór stund hjá mörgum að velja fermingarfötin og margir bregða á leik og taka myndir við þetta tækifæri sem notaðar eru á samfélagsmiðla eða sýndar í veislunni.

„Starfsfólkið leggur áherslu á að sýna krökkunum eitthvað sem fellur að stíl hvers og eins. Mörg eru með ákveðnar hugmyndir um hvað þau vilja og við leggjum áherslu á að uppfylla óskir þeirra.“

María bætir við að margir foreldrar noti tækifærið og skoði föt fyrir sjálfa sig enda úrvalið mikið í verslunum NTC. Margir nýta sér þá að vera í NTC-klúbbnum og noti vildarpunkta þegar þeir kaupa fyrir fjölskylduna.

Í vefútgáfu greinarinnar á dv.is má fletta fermingarhandbókinni frá NTC en þessi glæsilegu sýnishorn eru einungis brot af úrvalinu. Við mælum með að komið sé við í Galleri 17 í Kringlunni og Smáralind, skoðað, þreifað á, mátað og fengin sé góð ráðgjöf hjá starfsfólki.

Sjá einnig vefsíðuna ntc.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum