Komdu og prófaðu nýja Citroën C5 Aircross SUV með kraftmikilli vél, 8 gíra sjálfskiptingu og Grip Control spólvörn sem ásamt einstakri 23 cm. veghæð gerir hann frábæran í snjó og hálku.
CITROËN Á ÍSLANDI | BRIMBORG afhjúpar nýjan C5 Aircross SUV jeppa laugardaginn 23. febrúar næstkomandi. Þetta er tímamótabíll í sögu Citroën, magnaður lúxus með meiriháttar nýjungar eins og Progressive Hydraulic Cushions fjöðrunarkerfið og Advanced Comfort sætin. Upplifðu lúxusinnréttingu, breið sæti og háa sætisstöðu og sjáðu hvað hann er hár frá götu. Upplifðu lúxus.
Komdu á forsýningu og sjáðu þennan tímamótabíl í 100 ára sögu Citroën. Citroën C5 Aircross er einstakur lúxusjeppi á einstaklega hagstæðu verði þar sem aðalsmerki Citroën, einstök fjöðrun, leikur lykilhlutverk. Kynntu þér örugg gæði Citroën.
MÖGNUÐ AKSTURSÞÆGINDI: BYLTINGARKENND SNJÖLL FJÖÐRUN OG FRAMÚRSKARANDI SÆTI
Fjöðrunin er byltingarkennd en snjöll, afar einföld en jafnframt áhrifarík. Á meðan hefðbundin fjöðrunarbúnaður er byggður upp af gormi og dempara með gúmmípúða í enda fjöðrunar þá bætir Citroën við vökvastoppara bæði að ofan og neðan í demparanum sjálfum. Fjöðrunin virkar sérlega vel á ójöfnur í vegum en einnig í hvössum holum þar sem högg geta verið hörð eins og við dæmigerðar íslenskar aðstæður.
FRAMÚRSKARANDI VÉLAR, 8 ÞREPA SJÁLFSKIPTING OG SPÓLVÖRN
Nýr C5 Aircross SUV jeppinn er búinn Grip Control spólvörninni frá Citroën sem er einstakur drifbúnaður fyrir framdrifið sem kemur þér úr krefjandi aðstæðum í snjó, aur eða sandi. Hann er fáanlegur með nokkrum gerðum véla sem allar standast nýjasta mengunarstaðalinn Euro 6.2. Þær eru einstaklega sparneytnar og í boði með nýrri 8 þrepa sjálfskiptingu. Nýja 8 þrepa sjálfskiptingin eykur til muna sparneytni og þægindi í akstri. Í boði eru tvær bensínvélar, PureTech 180 hestafla með 8 þrepa sjálfskiptingu og PureTech 130 hestöfl með 6 gíra beinskiptingu. Tvær dísilvélar eru í boði með 8 þrepa sjálfskiptingunni, annars vegar 130 hestöfl og hins vegar 180 hestöfl og einnig fæst 130 hestafla dísilvélin með 6 gíra beinskiptingu.
SÚPER ÞÆGILEGUR: HÁR FRÁ GÖTU, BREIÐ SÆTI OG MEÐ STÆRSTA SKOTTIÐ Í SÍNUM FLOKKI
Þú átt eftir að falla fyrir rýminu. Citroën C5 Aircross SUV jeppinn er hár frá götu eða 23 cm. Citroën C5 Aircross SUV er útbúinn stærsta skottinu í sínum flokki frá 580 til 720 lítrar og lengd hans 4,5 m gerir hann einstakan hvað rými varðar. Aftursætin þrjú eru stök, jafnbreið og öll á sleðum, stillanleg og ótrúlega auðveld í notkun sem gerir m.a. kleift að hafa þrjá barnastóla í einu í bílnum. Nýr C5 Aircross SUV er með mörg geymsluhólf og m.a kælibox í miðjustokk bílsins.
ÖRYGGIÐ ER EINSTAKT
Í nýjum C5 Aircross SUV eru 20 aksturskerfi sem aðstoða ökumanninn við aksturinn og veita aukið öryggi í akstri m.a. ef þreyta gerir vart við sig. Kerfin greina hugsanlegar hættur og lágmarka þannig hættu á árekstri.
CITROËN C5 AIRCROSS SUV BER AF Í SÍNUM FLOKKI OG ER TILNEFNDUR SEM BÍLL ÁRSINS Í EVRÓPU 2019!
KOMDU Á FORSÝNINGU Á CITROËN C5 AIRCROSS SUV JEPPANUM 23. FEBRÚAR OG REYNSLUAKTU ÞESSUM TÍMAMÓTABÍL!