fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Mögnuð nýjung frá Weber: Pulse 2000, nýr valkostur fyrir þetta sumar

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 17. júní 2018 10:06

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Weber Pulse 2000 er frábær nýjung frá einum þekktasta og vinsælasta grillframleiðanda heims, Weber. Hér er um að ræða rafmagnsgrill sem varðveitir frábært grillbragð og gengur fyrir umhverfisvænni orku. Núna er alls staðar hægt að grilla þar sem þú kemst í rafmagn.

Weber Pulse hefur innbyggða iGrill tækni, iGrill app og stafrænan hitamæli. Þú hleður appinu niður á snjallsímann þinn og tengir hann við þræði sem liggja út úr  grillinu. Appið veitir þér rauntímaupplýsingar um hitann á kjötinu og eldunartíma, hver staðan er á kjötinu og svo framvegis. Enn fremur veitir það upplýsingar á borð við æskilegan hita.

Tvö hitaelement sjá um steikinguna á krásunum og tryggja að hitinn helst alltaf stöðugur.

Ekki spillir fyrir að Pulse 2000 er meðfærilegt og einkar smekklegt í útliti. Það fer því afskaplega vel á svölunum eða veröndinni.

Artikel verfügbar in: Deutschland, Österreich, Schweiz, Holland, Osteuropa
Berechtigte User: Premiumpartner und Weber-Stephen
Bildstatus: online

Helstu eiginleikar:

  • Rafmagnsgrill
  • 2,2 KW / 230 V
  • Postulíns-glerungshúðaðar grillgrindur úr pottjárni
  • Grillflötur: 49 x 39 cm
  • Tvö hitasvæði
  • Innbyggt iGrill, allt að 4 hitaþræðir, 2 fylgja
  • Stafrænn LED hitamælir

Heildar utanmál með lok opið/lokað og borð útrétt:

  • 146cm/107cm x 112cm x 76cm/65cm (HxBxD)
  • Niðurfellanlegt hliðarborð á hjólavagni
  • 3 áhaldakrókar á vagni
  • Álbakki fyrir fitu
  • Litur á loki: svart

Weber grill í næstum sjö áratugi

Weber grill eru yfirburðavara á markaðnum. Þau hafa verið framleidd síðan árið 1952 og hafa orð á sér fyrir frábæra endingu sem kemur sér afar vel í rysjóttri íslenskri veðráttu. Auk þess að viðhalda áfram sömu gæðunum er Weber sífellt að þróa nýjungar, nokkuð sem Weber Pulse 2000 er glæsilegt dæmi um.

Á vefsíðunni weber.is er að finna ítarlegar upplýsingar um  Weber grill, aukahluti, verð, sölustaði – að ógleymdum góðum ráðum fyrir grillmatreiðsluna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum