fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Kynning

Stefan B. Chocolatier: Guðdómleg ofurfæða á jólunum

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 22. desember 2018 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestum þykir gott að narta smá í súkkulaði eða ljúffenga konfektmola yfir hátíðarnar. Þegar fólk lætur slíkt eftir sér er tilvalið að hafa það dálítið spari og hafa það virkilega vandað og gott. Í verslun Stefáns að Laugavegi 72, Reykjavík, er að finna guðdómlegt handgert súkkulaði frá einum fremsta súkkulaðimeistara landsins. Stefán er svokallaður „chocolatier“ sem merkir að hann vinnur súkkulaði- og konfektafurðir úr súkkulaðimassa. Hráefnið í afurðir sínar fær hann frá Kólumbíu.

 

Súkkulaði: ofurfæða guðanna

Í verslun Stefáns er að finna gott úrval af bæði súkkulaðiplötum og konfekti. Eins og flestir vita er súkkulaði eða kakó í eðli sínu mjög holl afurð, sannkölluð ofurfæða, en sykurinn er síður hollur. Hann er settur í súkkulaði til að gera það sætt á bragðið, en algjörlega ósætt súkkulaði getur verið svolítið biturt. Í verslun Stefáns er lögð áhersla á úrval og því má fá allt frá 60% súkkulaði með töluverðu sykurmagni upp í algerlega sykurlaust 100% hreint súkkulaði. „Við erum með um 200 gerðir af súkkulaðiplötum og um 25–30 gerðir af konfekti. 85% súkkulaðið hjá okkur er mjög vinsælt og frekar hollt, enda ekki mikið af sykri í því. Þeir allra hörðustu fara upp í 90% og jafnvel 100%, en það hentar þar að auki vel til matargerðar,“ segir Stefán og bætir við að verslunin bjóði einnig upp á sykurlaust súkkulaði. „Margir vilja af ýmsum ástæðum sætt súkkulaði en engan sykur. Þá er notað malitol í staðinn fyrir sykurinn og fæst þetta súkkulaði í ýmsum bragðtegundum, allt frá hefðbundnu dökku súkkulaði yfir í súkkulaði með engiferbragði,“ segir Stefán.

Heitt súkkulaði með engri fyrirhöfn

Á köldum vetrardögum er fátt notalegra en að hræra sér í heitt súkkulaði. Hjá Stefáni B. fæst stórsniðug vara til þess að búa til hið fullkomna heita súkkulaði með minnstu fyrirhöfn. „Þetta eru teskeiðar sem búið er að steypa í súkkulaðikubba. Þessu er svo skellt í heita mjólk og hrært í. Súkkulaðið bráðnar út í mjólkina og maður er kominn með þetta fína heita súkkulaði með engri fyrirhöfn.

Það er bæði hægt að fá þetta í mismunandi súkkulaðistyrkleika, en svo geri ég líka jólafígúrur. Jólafígúrurnar hafa t.d. verið vinsælar sem gjafir í skóinn. Ekki skemmir svo fyrir hvað það er gott súkkulaðið í þessu,“ segir Stefán.

Salt og sætt, hin fullkomna blanda

Spurður um hvað séu vinsælustu afurðirnar segir Stefán að súkkulaði með sjávarsalti hafi slegið rækilega í gegn. „Sjálfum finnst mér saltið fara betur í dökku súkkulaði því það spilar mjög vel á móti biturleikanum í því, en ég býð að sjálfsögðu upp á bæði ljóst og dökkt,“ segir Stefán. Íslendingarnir eru einnig að vanda sólgnir í súkkulaði með lakkrís. Stefán hefur þróað dásamlegt, dökkt súkkulaði með lakkrísbragði í staðinn fyrir lakkrísbita. „Erlendu ferðamennirnir sem koma í verslunina sneiða oftast hjá lakkríssúkkulaðinu enda er það séríslenskur siður að blanda saman súkkulaði og lakkrís,“ segir Stefán.

Handgerða konfektið frá Stefan B. Chocolatier er síðan fullkomin gjöf í jólapakkann. „Við bjóðum upp á úrval af jólakörfum, konfektkössum og konfekti í sellófanpakkningum fyrir alla þá sem vilja gleðja súkkulaðiáhugamanninn í lífi sínu,“ segir Stefán og býður alla velkomna að líta við og skoða úrvalið.

Stefan B. Chocolatier er staðsett að Laugavegi 72
Nánari upplýsingar á stefanb.is
Facebook
Netfang: info@stefanb.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum