fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

OneSystems: Hugbúnaðarlausnir fyrir stór og lítil fyrirtæki

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 16. desember 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„OneSystems er íslenskt fyrirtæki sem þróar íslenskan hugbúnað fyrir íslenskar aðstæður og þróar hann á Íslandi,“ segir Ingimar Arndal sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækisins frá upphafi. Fyrirtækið var stofnað árið 2002 og sérhæfir sig í að bjóða upp á upplýsingatæknilausnir sem bæta og efla starfsemi fyrirtækja og auka skilvirkni og framleiðni. „OneSystems stefnir að því að viðskiptavinir og notendur kerfanna geti verið að mestu sjálfbjarga með daglegan rekstur á kerfunum, svo sem að stilla upp ferlum, verkum og sniðum að bréfum, vefeyðublöðum og svo framvegis,“ segir Ingimar.

 

OneSystems fyrir alls konar fyrirtæki

OneSystems býður upp á allt að 70 mismunandi kerfiseiningar sem hægt er að raða saman allt eftir þörfum viðskiptavinarins og með það að markmiði að lausnin henti flestum fyrirtækjum og stofnunum. „Það er því auðvelt og fljótlegt að laga One kerfin að þörfum viðskiptavinarins,“ segir Ingimar og bendir á að hugbúnaðarlausnir OneSystems séu afar sveigjanlegar og falli vel að fyrirtækjum og stofnunum í örum vexti. „Stækkanlegar hugbúnaðarlausnir okkar hjálpa fyrirtækjum við að halda kostnaði og áhættu niðri með því að byrja smátt og stækka síðan auðveldlega eftir því sem aðstæður breytast.“ Meðal ánægðra viðskiptavina OneSystems má nefna öll helstu sveitarfélög landsins og margar af stærri ríkisstofnunum, en einnig eru mörg einkafyrirtæki búin að taka One kerfi í notkun.

 

Smíði vefumsókna án forritunarkunnáttu

OneSystems byggir eins og áður sagði á 70 mismunandi kerfiseiningum sem virka á mismunandi hátt. „OnePortal Self-service vefgáttin gerir til dæmis fyrirtækjum og sveitarfélögum kleift að veita íbúum þjónustu allan sólarhringinn, allt árið um kring. Rafrænir innri ferlar eru tengdir við þjónustugátt fyrir t.d. íbúa eða viðskiptavini, þar sem þeir geta afgreitt sjálfa sig á sjálfvirkan máta með innsendingu umsókna og erinda á vefnum. Með eyðublaðasmið geta viðskiptavinir sjálfir búið til sín eigin umsóknareyðublöð og tengt þau við innri ferla sem viðskiptavinir geta einnig gert sjálfir,“ segir Ingimar.

 

Samþætting hugbúnaðarkerfa og nýjasta forritunartækni

Hugbúnaður OneSystems er hannaður samhliða nýjustu forritunartækni til þess að keyra auðveldlega með helstu uppsetningum, hugbúnaði og stöðlum. „Með nýjustu tækni geta hugbúnaðareiningar OneSystems átt samskipti við hugbúnað frá þriðja aðila í gegnum internetið. Við byggjum lausnir okkar ofan á Microsoft Windows miðlara, Microsoft SQL gagnagrunn og vafra fyrir viðmót kerfanna. Einnig sérhæfum við okkur í hlutbundnum, stækkanlegum alhliða lausnum. Kerfin nota „Single Logon“ IWA – Inter­grated Windows Authentication til auðkenningar og innskráningar. Auk þess vinna kerfin mjög vel á móti Microsoft Office, Outlook, Word og Excel.“

 

Róbótalausnir – spennandi nýjung

OneSystems hefur nýlega tekið upp spennandi nýjung sem bætir enn fremur skilvirkni og sjálfvirkni í opinberri stjórnsýslu. „OneSystems hefur undanfarin ár þróað lausnir í sjálfvirkum róbótalausnum sem kemur í stað handavinnu við skjalavinnslu, mál, erindi, umsóknir og umsýslu. Slíkt getur sparað allt að 40% af vinnu starfsmanna sem geta þá sinnt eftirliti fremur en tímafrekri handavinnu.

 

Nánari upplýsingar um OneSystems má finna á one.is

Síðumúla 21 (Selmúlamegin), 108 Reykjavík.

Sími: 588-1050 og 660-8551

Opið alla virka daga 9–17.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum