fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Betra Líf í jólaskapi: Hefur stutt við andlegan þroska í þrjá áratugi

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 16. desember 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flestir, ef ekki allir, sem hafa áhuga á andlegum þroska og vilja bæta líf sitt þekkja til verslunarinnar Betra Líf sem verður 30 ára á næsta ári. Guðrún Bergmann stofnaði verslunina árið 1989 og var hún fyrst staðsett við Laugaveginn. Síðar seldi Guðrún verslunina Snæfríði Jensdóttur sem hefur rekið hana síðan. Verslunin er nú staðsett á þriðju hæð í Kringlunni.

Í Betra Líf færðu gjafir handa þeim sem þú vilt færa kærleika og ljós. Þar má nefna hugleiðsludiska og slökunartónlist, orkusteina, mikið úrval af reykelsi, bækur sem rækta andann, pendúla, draumanet, náttúrulegar snyrtivörur og olíur, skartgripi, englastyttur, saltsteins- og selenít-kertastjaka og dagbækur.

Gott dæmi um bækur sem eru til sölu í versluninni er ný bók eftir stofnandann, Guðrúnu Bergmann: Jákvæðar hvatningar – Til daglegra nota. Guðrún gaf bókina út núna fyrir jólin og er hún eingöngu til sölu í Betra Líf.

Viltu láta spá fyrir þér?

Í Betra Líf fæst fjölbreytt úrval af tarotspilum, spáspilum og englaspilum. Einnig fást spil til draga fyrir hvern dag, jákvæð gullkorn bæði á íslensku og ensku.

Ef áhugi er á að láta spá fyrir sér þá er hægt að panta tíma í versluninni hjá Ragnheiði Ólafsdóttur spámiðli.

Saltsteinslamparnir sívinsælu, sem eru hin fullkomna jólagjöf fyrir alla, fást einnig í Betra Líf í ýmsum stærðum.

Betra Líf þjónar þér með kærleika, gleði og ljósi. Eigðu notalega stund með okkur í versluninni á þriðju hæð Kringlunnar nú fyrir jólin og þú finnur áreiðanlega gjöf sem nærir og gleður lengi. Sjá nánar á  á Facebook-síðunni Betra Líf.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum