fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Allora: Grimmdarlaus snyrtivara á góðu verði

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Sunnudaginn 16. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Wet n Wild og Cover Girl

„Þegar Cover Girl var stofnað 1961 var áherslan lögð á góð dagkrem. Hægt og rólega fór fyrirtækið að hanna og innleiða snyrtivörur í línur sínar samhliða því að framleiða fyrsta flokks dagkrem. Það gleður okkur sérstaklega að Cover Girl er orðið 100% grimmdarlaust eða „cruelty free“. Wet n Wild var stofnað 1979. Snyrtivörumerkið hefur unnið fjöldann allan af verðlaunum þar sem vörurnar frá þeim eru svo mjúkar og góðar á svo marga vegu. Formúlan er endingargóð, merkið er grimmdarlaust, margar vörur frá þeim eru vegan og svo eru vörurnar á ótrúlegu verði!“ segir Sigríður Arnfjörð, eigandi netverslunarinnar allora.is.

 

Fagna fjölbreytileikanum

„Við hjá Allora seljum snyrtivörur frá þessum tveimur stóru snyrtivörumerkjum, sem eins og sést, eru að gera mjög góða hluti úti. Í dag erum við öll, og sérstaklega unga kynslóðin, undir stöðugu áreiti samfélagsmiðlanna þar sem misjákvæðum boðskap er stanslaust miðlað um fegurð og staðalímyndir. Mér fannst mikilvægt að vera góð fyrirmynd og koma jákvæðum skilaboðum á framfæri um hvað það er dásamlegt að vera alls konar. Mér fannst þessi tvö merki eiga heilmikið erindi á íslenskan markað enda frábærar vörur á enn betra verði. Á sama tíma leggja bæði merkin upp úr fagmennsku og vönduðum vörum auk þess að fagna fjölbreytileikanum. Við hjá Allora neitum að trúa því að fegurð sé föst í staðalímynd, hún er ekki innan neins ramma og hún felst svo sannarlega ekki í því að allir séu eins.“

 

Fullkominn grunnur að flottri förðun

Fyrir góðan grunn undir förðun er fyrst og fremst mikilvægt að nota serum og/eða gott rakakrem undir allan farða enda er veðrið hér á landi síbreytilegt og húðin viðkvæm fyrir snöggum hita- og kulda breytingum.

„Wet n Wild Photo Focus meikið er vinsælast hjá okkur, enda ótrúlega mjúkt og endingargott. Það er lykilatriði í því að fá fallega húð sem gerir allt heildarútlitið svo glæsilegt. Við eigum mjög fjölbreytt litaúrval af þessu meiki og því ættu allir að geta skartað fallegri, heilbrigðri og jafnri húð yfir hátíðarnar.“

 

Geggjaður varalitur sem helst á allan daginn

„Það sem setur klárlega punktinn yfir i-ið er Cover Girl Melting pout Mattes varaliturinn sem vann einmitt til Allure-verðlauna núna 2018. Hann er ótrúlega mjúkur þótt hann sé mattur, þurrkar ekki upp varirnar og svo endist hann og endist, allan daginn. Við mælum sérstaklega með honum í jólaboðunum þar sem maður er að smakka á góðum mat í góðum félagskap. Það er ekkert leiðinlegra en að þurfa að fylgjast með varalitnum allan daginn og bæta reglulega á.“

Rauðar varir yfir hátíðarnar

„Það er svo gaman að gera sig fína fyrir jól og áramót og þá sérstaklega þegar kemur að förðun, því hún getur haft svo mikil áhrif á heildarútlitið. Það er auðvitað mjög einstaklingsbundið hvað hentar hverjum og einum og við hjá Allora leggjum upp úr og fögnum fjölbreytileikanum með breiðu vöruúvali. En það sem er sígildast yfir hátíðarnar er auðvitað rauðar varir. Þær eru bara svo afskaplega fallegar og jólalegar. Við mælum sérstaklega með Cover Girl Melting pout mattes og Wet n Wild Mega last liquid catsuit matte sem endast út allt jólaboðið.“

 

Glitrandi augnförðun til að toppa eldrauðar varir

„Í augnförðun eru brúnir og gylltir litir alltaf vinsælir. Litirnir passa líka fullkomlega með rauðum hátíðlegum vörum. Við eigum svo fallegan gylltan Vitalist Healthy Glow Candlelit highlighter frá Cover Girl sem er fullkominn á augnlokin. Áferðin er frábær og hann glitrar svo hátíðlega.“

Vitalist Healthy Glow Highlighter

 

Fallegar gjafaöskjur

„Vörurnar okkar koma í fallegum svörtum öskjum sem auðveldar þeim sem ætla að gefa vörurnar frá okkur í jólagjafir. Þá nægir einfaldlega að setja fína slaufu á öskjuna og þá er gjöfin tilbúin. Annars óskum við hjá Allora landsmönnum fallegra og gleðilegra jóla!“ segir Sigríður.

Hægt er að kaupa Wet n Wild og Cover Girl vörurnar frá Allora á allora.is
Skoðaðu: Instagram og Facebook 
Sími: 848-2234
Netfang: allora@allora.is

Allora

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum