fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Tónskóli Hörpunnar: Gott nám fyrir sálina

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 15. desember 2018 18:00

Ingrid Örk Kjartansdóttir píanókennari og söngkennari með nemanda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónskóli Hörpunnar hefur verið starfandi í Grafarvogi í hartnær 20 ár.

Skólinn sér aðallega um kennslu á grunnstigi en er þó með fáeina nemendur á miðstigi. „Hér erum við með góða tónlistarkennara sem kenna á píanó/hljómborð, fiðlu, gítar, þverflautu, klarinett, harmoniku, raf- og kontrabassa og saxófón. Svo kennum við einnig einsöng og míkrófónsöng ásamt því að kenna tónfræði og tónheyrn. Einnig erum við með forskólakennslu fyrir hópa á blokkflautu. Á veturna hafa verið haldin kvöldnámskeið fyrir fullorðna í gítarleik með það að markmiði að geta leikið undir almennan söng,“ segir Svanhvít Sigurðardóttir, skólastjóri og kennari við skólann.

Svanhvít skólastjóri

Tökum nýjum nemendum fagnandi

„Fjölmargar rannsóknir sýna fram á að þeim börnum sem stunda tónlistarnám vegnar betur í lífinu, þau eru einbeittari, skipulagðari og allajafna hamingjusamari. Tónlistarnám styrkir fólk í öllu sem það tekur sér fyrir hendur síðar meir. Það þjálfar hlustun, minni, hrynskyn, fínhreyfingar og margt fleira. Svo ekki sé nefnd getan til þess að spila á hljóðfæri. Það er tjáning sem má engan veginn vanmeta.

Við höfum barist fyrir því lengi að borgaryfirvöld leiðrétti styrkjaframlag til tónskólans. Við fáum styrk fyrir um 68 nemendur en erum nú með 120 nemendur. Okkar stefna hefur alltaf verið sú að öll börn og unglingar fái tækifæri til þess að læra á hljóðfæri og því höfum við ekki vísað nemendum frá, heldur þvert á móti tekið þeim fagnandi,“ segir Svanhvít.

 

Kennt á mörgum stöðum

Auk þess að kenna í höfustöðvunum í Spönginni er Tónskóli Hörpunnar með kennslu í mörgum grunnskólum borgarinnar á skólatíma. Hljóðfærakennsla á vegum skólans fer nú fram í 10 grunnskólum, en þeir eru; Kelduskóli Korpa, Kelduskóli Vík, Vættaskóli Engi, Vættaskóli Borgir, Húsaskóli, Sæmundarskóli, Ártúnsskóli, Réttarholtsskóli, Háaleitisskóli Hvassaleiti og Háaleitisskóli Álftamýri.

Það er aldrei of seint að byrja

„Þótt við séum fyrst og fremst að kenna börnum á grunnskólaaldri erum við einnig með eldri nemendur. Elsti nemandinn okkar tók þátt í gítarnámskeiði og var hann 88 ára. Hann er sönnun þess að það er einfaldlega aldrei of seint að byrja að læra á hljóðfæri. Einu forsendurnar fyrir tónlistarnámi er í raun vilji. Ef fólk vill læra þá á það einfaldlega að skella sér í nám. Það er svo gott fyrir sálina,“ segir Svanhvít.

 

Jólatónleikar Tónskólans

Þess má geta að í næstu viku verða jólatónleikar Tónskólans haldnir í Borgum, Kirkjuseli Grafarvogskirkju í Spönginni. Þar koma fram allir nemendur skólans. Tvennir tónleikar verða haldnir á þriðjudag 11. des. kl. 17.30 og 19 og tvennir á fimmtudag 13. des. 17.30 og 19. Frítt er inn á tónleikana.

Stöllurnar Ingrid og Svanhvít

Skráning fyrir vorönn í Tónskóla Hörpunnar er hafin á vefnum rafraen.reykjavik.is

Nánari upplýsingar má nálgast á harpan.is

Skólinn er staðsettur í Spönginni 37–39, Grafarvogi

Sími: 567-0399

Vefpóstur: harpan@harpan.isa

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum