fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Kynning

Bláfjöll og Skálafell bíða spennt eftir snjónum!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Fimmtudaginn 15. nóvember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skíðasvæðin eru samnefni yfir skíðasvæðin í Bláfjöllum og Skálafelli. Bláfjallasvæðið er stærra og með fleiri lyftum en á móti kemur að Skálafell hefur gríðarlegan sjarma þar sem svæðið snýr á móti sólu og þar er töluvert meira af ósnortnu landi. Í sumar hefur verið töluvert af framkvæmdum í Bláfjöllum enda er margt í kortunum fyrir framtíðina á báðum svæðunum. „Við höfum fengið samþykki fyrir fjölda framkvæmda sem við munum setja af stað á næstu árum. Á næsta ári byrjum við á nýrri stólalyftu í Bláfjöllum sem verður tilbúin til notkunar árið 2020. Einnig ætlum við að setja upp snjóframleiðslukerfum, byggja nýjan skála í Bláfjöllum og Skálafelli svo lítið eitt sé nefnt,“ segir Magnús Árnason, framkvæmdastjóri skíðasvæðanna.

 

Ný lyfta fyrir brettaiðkendur

Undanfarin ár hefur brettaíþróttin undið uppá sig og sportið stækkað umtalsvert. Áhuginn hefur vaxið og er Brettafélag Hafnarfjarðar orðin næststærsta brettadeildin á landinu. „Við höfum fylgt aukningunni eftir og erum stolt af glæsilegu svæði fyrir brettaiðkendur í Bláfjöllum sem við köllum Brettaparkið. Við vorum einmitt að setja upp nýja lyftu fyrir brettaiðkendur til þess að þeir komist á brettaparkið án þess að þurfa að fara í röðina fyrir stóru lyftuna, eða Kónginn. Þetta mun létta töluvert á þeirri röð og gera þeim sem er á svæðinu kleyft að renna sér enn oftar niður brekkurnar,“ segir Magnús.

Skíðasvæðin

Gönguskíði

Gríðarleg aukning hefur orðið í gönguskíðamennsku hér á landi og eru 4-5 brautir lagðar hvern dag í Bláfjöllum. Gönguskíðasvæðið stækkar eftir því sem snjór eykst á svæðinu og er byrjað á að troða stystu leiðina sem er um 3 km. Lengri leiðirnar eru allt að 10-15 km langar. „Við höfum bætt merkingar og sett upp snjógirðingar á svæðinu. Almenningur hefur uppgötvað hvað gönguskíðamennskan er frábært sport og við tökum nýjum iðkendum fagnandi með fjölbreyttum og vel merktum brautum sem henta byrjendum jafnt sem lengra komnum. Það er ótrúlegt að fara eftir þessum leiðum. Allt í einu ertu orðinn einn með sjálfum þér uppi á heiði með frábært útsýni yfir bæði Þorlákshöfn og Eyrarbakka. Þetta er einfalt sport, maður er fljótur að ná tökum á því og svo fer maður þetta á sínum hraða,“ segir Magnús.

 

Vetrarkort á 25% afslætti

„Við komum verulega til móts við fjölskyldufólk og viljum benda á að það er sérstakur fjölskylduafsláttur á vetrarkortunum okkar út nóvember. Þetta er 25% afsláttur og besti afsláttur sem hefur verið gefinn frá upphafi. Við bendum fólki á að nýta sér þennan afsláttinn áður en verður um seinan. Jafnframt höfum við gert aðra breytingu á gjaldskrá sem felst í því að börn eru lengur börn og ungmenni lengur ungmenni. Þá eru börn allt að 12 ára, en ekki 10 ára eins og í fyrra, og ungmenni eru ungmenni fram að 18. aldursári. Þetta mun að sjálfsögðu lækka kostnaðinn á vetrarkortum fyrir margt fjölskyldufólk,“ segir Magnús.

Skíðasvæðin

Dásamlegt að sjá byrjendur taka sín fyrstu skref

Fyrir byrjendur er bráðsniðugt að leigja skíðabúnað þar sem kaup á búnaði geta verið þung á pyngjuna, sérstaklega ef fólk veit ekki hvort það ætlar sér að stunda sportið af alvöru. Í Bláfjöllum er hægt að leigja skíði, bretti, skíðaskó, stafi og fleira. Það er einnig mikil eftirspurn í skíða- og brettaskólann hjá Skíðasvæðunum. Skíða- og brettaiðkun eru tilvalin íþrótt fyrir vini og fjölskyldur til að stunda saman og það er fátt skemmtilegra en að sjá barnið sitt stíga sín fyrstu skref á skíðunum.

 

Eru að gera klárt fyrir veturinn

„Við erum á fullu núna að gera allt klárt fyrir veturinn og vonumst til þess að snjórinn fari bráðum að láta sjá sig. Undanfarin ár hefur okkur oftast tekist að opna skíðasvæðið í desember og krossum fingur að það takist einnig í ár. Veturinn í fyrra var reyndar mjög góður og við náðum góðri opnun fyrir skíðaiðkendur

Skíðasvæðin

Skálafell og Bláfjöll eru bæði í um 25 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík.

Opið er í Bláfjöllum á virkum dögum kl. 14–21 og um helgar 10–17.

Opið er í Skálafelli allar helgar frá 4. febrúar og fram yfir páska kl. 10–17.

Upplýsingasími: 530-3000

Skálafell, sími: 566-7095

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Skíðasvæðanna, og á Facebooksíðunni Skíðasvæðin – Bláfjöll & Skálafell.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum