fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

17 ára piltur ákærður fyrir manndráp af gáleysi – Seldi 15 ára pilti MDMA sem varð honum að bana

Kristján Kristjánsson
Föstudaginn 13. apríl 2018 22:00

Hald var lagt á mikið magn fíkniefna.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um miðjan febrúar lést 15 ára piltur, Adam Buk frá Haslev í Danmörku, eftir að hann tók inn MDMA sem hann keypti af 17 ára pilti. Buk og vinur hans tóku efnið inn síðdegis þann 2. febrúar. Um kvöldið veiktust þeir og voru strax lagðir inn á sjúkrahúsið í Køge. Fljótlega varð ljóst að ástand Buk var mjög alvarlegt og var hann fluttur í skyndingu á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Honum var haldið sofandi í 13 daga en læknum tókst ekki að bjarga lífi hans og lést hann 15. febrúar.  Vinur hans jafnaði sig hins vegar og fékk að fara heim daginn eftir að hann var fluttur á sjúkrahús.

Ákæruvaldið hefur nú ákært 17 ára pilt frá Næstved fyrir manndráp af gáleysi en hann seldi Buk og vini hans MDMA. Efnið var óvenjulega sterkt. Pilturinn hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan í byrjun febrúar en þar sem hann hefur ekki náð 18 ára aldri má ekki vista hann í fangelsi og hefur hann því verið vistaður á lokaðri deild á vegum félagsmálayfirvalda.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi