Rétt rúmlega fimm í dag voru björgunarsveitir kallaðar út vegna örmagna konu sem er í sjálfheldu á Ingólfsfjalli. Klukkustund síðar náðu björgunarsveitir og lögregla að staðsetja konuna en hún gat ekki sagt til um nákvæma staðsetningu. Það er Vísir.is sem greinir frá þessu.
Samkvæmt frétt Vísis um málið er konan stödd í stórgrýttu gili og treystir sér ekki til þess að hreyfa sig. Björgunarsveitarafólk er þessa stundina á leiðinni upp fjallið með búnað til þess að koma konunni niður en alls taka fimm björgunarsveitir þátt í aðgerðinni.
Fréttin verður uppfærð