Plokkæði hefur runnið á landsmenn undanfarið en varla er hægt að hugsa sér heilbrigðari og uppbyggilegri tómstundaiðju en plokkið, þar sem fólk nýtur útivistar og hreyfingar um leið og það hreinsar rusl og plast úr náttúrunni.
Í dag, sunnudaginn 22. apríl, er Dagur jarðar, og af því tilefni gengst Ferðafélag Íslands fyrir stórum sameiginlegum plokkdegi. Almenningur, félagsmenn og meðlimir í öllum fjallgöngu- og hreyfihópum FÍ taka höndum saman og gera árás á plast og rusl í nágrenni Reykjavíkur. Mæting er við bensínstöð Olís í Norðlingaholti við Rauðavatn og þaðan verður plokkað í allar áttir. Hver og einn er hvattur til að taka með sér þrjá ruslasekki.
Sjá nánar á Facebook-síðu viðburðarins.