fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Sífellt fleiri ungmenni í vítahring vegna smálána: „Við höfum áhyggjur af þessari þróun“

Smálánin sívaxandi hlutfall af heildarkröfum þeirra sem leita til Umboðsmanns skuldara

Auður Ösp
Miðvikudaginn 14. febrúar 2018 11:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hlutfall ungs fólks sem leitar sér aðstoðar hjá umboðsmanni skuldara fer hækkandi, sem skýrir að hluta aukinn fjölda umsækjenda hjá embættinu síðustu tvö ár. Smálánin eru sívaxandi hlutfall af heildarkröfum þeirra sem leita til embættisins og eru nú algengari en fasteignalánin.

Hlutfall smálána af heildarkröfum þeirra sem sækja um ráðgjöf eða greiðsluaðlögun hjá umboðsmanni skuldara hefur vaxið umtalsvert á undanförnum árum. „Nú er svo komið að hlutfall smálána af heildarskuldum umsækjenda er nú í fyrsta skipti hærra en hlutfall fasteignalána,“ segir Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Hún nefnir sem dæmi að á árinu 2017 hafi hlutfall smálána af heildarkröfum umsækjenda um greiðsluaðlögun verið 43 prósent en aðeins 18 prósent árið 2015. Á sama tíma hafi hlutfall fasteignalána farið úr 32 prósent niður í 17 prósent í fyrra.

Mynd: Sviðsett mynd: DV

Fjölgun í yngsta aldurshópi

Fjöldi þeirra sem sóttu eftir aðstoð hjá umboðsmanni skuldara hefur verið að aukast frá árinu 2015 en á árinu 2017 bárust 470 umsóknir um greiðsluaðlögun en 386 umsóknir á árinu 2015. Þetta má að hluta til rekja til aukins fjölda yngra fólks sem er jafnframt sá hópur sem tekur frekar smálán.

Ásta Sigrún hefur áhyggjur af þessari þróun.

„Í dag er meirihluti umsækjenda á milli 18-39 ára, eða 57,2 prósent um greiðsluaðlögun og 56,3 prósent umsækjenda um ráðgjöf. Þar af er mesta aukningin í yngsta aldurshópnum, 18-29 ára, sem hefur t.d. farið úr 14,9 prósent í 23,2 prósent í greiðsluaðlögun. Svo virðist sem yngra fólk leiti frekar til smálánafyrirtækja og flækist fljótt í skuldavef sem erfitt getur verið að losna úr.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Þörf á aukinni fræðslu um fjármál

Ásta Sigrún segir að meginhlutverk embættisins sé að bæta stöðu einstaklinga sem eiga í skulda- og greiðsluerfiðleikum og auðvelda þeim að koma greiðslubyrði og skuldastöðu í ásættanlegt horf.

„Við höfum áhyggjur af þessari þróun og áhrifum smálána á fjármál yngra fólks. Ljóst er að þörf er á að efla fjármálafræðslu í grunn- og framhaldsskólum landsins og hyggst embættið beita sér fyrir því á árinu 2018 og hefur þegar átt samtal við samband íslenskra framhaldsskólanema. Með þessu aukna aðgengi að lánsfé er enn mikilvægara að fjármálalæsi verði aukið og þeir sem taki þessi lán sé vel upplýstir um hvað það kostar og hverjar afleiðingarnar eru ef þau falla í vanskil.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi