fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Svala hefur unnið eins og skepna en fór fyrst til útlanda nýlega: „Finnst ég ekki hafa fengið neina umbun fyrir að standa mig vel“

Ritstjórn DV
Laugardaginn 13. október 2018 10:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég er ættuð frá Fljótsdal fyrir austan. Ég missti pabba þegar ég var tveggja ára, yngst af sex systkinum og mamma reyndi að halda áfram búskapnum sem var erfitt í þá daga. Vinnan var yfirþyrmandi fyrir systkini mín og mömmu sem vakti í heilan mánuð og það endaði með því að við fluttum til Reykjavíkur og mamma fór að vinna í fiski.“ Þetta segir Svala Axelsdóttir sem vinnur í eldhúsinu hjá NFLÍ.

Svala er ein þeirra sem segja sögu sína í tengslum við verkefnið Fólkið í Eflingu. Hún segist hafa unnið baki brotnu alla ævi en þrátt fyrir það getur hún leyft sér lítið. „Ég var 15 ára þegar ég fór að vinna í sjoppu í Reykjavík og 18 ára komin í fisk austur á Höfn en þangað fluttum við mamma og systir mín. Ég var svo samviskusamur vinnukraftur, aldrei veik, mætti alltaf, líka um miðjar nætur í handflökun, vann eins og skepna án þess að fá almennileg laun fyrir það. Einu sinni bað ég um frí, og verkstjórinn sagði nei! Þá var mér nóg boðið og ég barði í borðið, og ég fékk frí. Í fisk var fólk sem drakk á milli vakta og mætti illa en þá var hægt að kalla á mig. Uppeldið og samviskusemin leyfa mér ekki annað og ég þoli ekki að koma of seint, samt finnst mér ég ekki hafa fengið neina umbun fyrir að standa mig vel,“ segir Svala.

Hún segist hafa kynnst manninum sínum á Höfn. „Ég vann líka á leikskólanum á Höfn í mörg ár og ég eignaðist fjölskylduna mína á Höfn, manninn minn, sem var ekkjumaður með þrjú börn. Það var stórt verkefni, en að vandlega hugsuðu máli tókst ég á við það. Yngri börnin tvö höfðu verið hjá mér á leikskólanum og ég þekkti þau vel sérstaklega stelpuna. Við fluttum í Ölfusið þegar maðurinn minn fékk vinnu hjá Eimskip en þær tekjur dugðu ekki þannig að ég réð mig hingað. Ég var sem betur fer komin á þennan vinnustað, hjá Náttúrulækningastofnun, þegar í ljós kom genagalli hjá börnunum mínum og það þurfti að taka úr þeim ristilinn, öllum þrem sem var mikið áfall fyrir fjölskylduna. En hérna á vinnustaðnum var skilningur á aðstæðum og ég fékk frí þegar ég þurfti á því að halda. Ég vil ekki hugsa það til enda ef við hefðum búið enn þá fyrir austan, þegar þetta skall á. Kerfið er svo þungt, þá hefði það verið miklu meiri kostnaður,“ segir Svala.

Svala segist hafa stritað alla ævi en situr einungis uppi með skuldir. „Ég er búin að vinna hjá Náttúrulækningastofnun í tíu ár. Byrjaði í sundlauginni, kom við í ræstingunum, leirnum og síðast hingað í eldhúsið og geng í öll störf þarf, sem er mjög gott og ég verð ekki leið á vinnunni. Eftir allt þetta strit erum við með skuldir á bakinu og eignalaus. Ég leigi hjá vinnuveitenda, svo lánsöm að fá það annars gæti ég ekki leyft mér neitt. Það var fyrst eftir að börnin fluttu að heiman að við gátum leyft okkur eitthvað og þegar ég varð fimmtug þá nurluðum við saman fyrir ferð og ég fór í fyrsta sinn til útlanda. Ég fer varla að breyta til á mínum aldri, ég er orðin 54 ára og það er ekki auðvelt að skipta um starf. Ég hefði gjarnan viljað vinna við garðyrkju, ég kláraði Garðyrkjuskólann í Hveragerði. En það gengur bara ekki upp, sérstaklega eftir að bakið skaddaðist. Ég þarf að halda mér við, og stunda líkamsrækt. Þetta er dálítið að lifa frá degi til dags, ekkert öruggt og ég má hvorki við því að missa heilsu né vinnu,“ segir Svala.

Hún segir að verkalýðsfélög hafi brugðist meðlimum sínum í seinni tíð: „Þegar ég var í fiski, þá var ég ritari hjá verkalýðsfélaginu Vökli og fengin í stjórn. Ég hafði gott af því eftir að hafa verið lengi trúnaðarmaður í frystihúsinu. Í mörg ár hefur mér fundist verkalýðsfélögin ekki vinna neitt fyrir okkur. Ég er mest bitur út í það hvernig félögin leggja sig fram við að koma á móts við vinnuveitendur í staðinn fyrir að tala við okkur, og spyrja um þarfir okkar verkafólksins? Þannig hefur það virkað á mig, að það sé alltaf verið að vinna út frá hagsmunum vinnuveitandans. Verkalýðsfélagið hefur stækkað svo mikið og fyrir vikið orðið ópersónulegt, það sárvantar mannlegu hliðina, eins og þeir segja í læknisfræðinni: „þeir gleymdu í fræðunum hvernig maður á að tala við fólk.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi