Samkvæmt könnun sem Félagsvísindastofnun gerði fyrir Morgunblaðið myndi Vinstri hreyfingin – grænt framboð fá 30% atkvæða og 22 menn kjörna ef kosið yrði til Alþingis nú en kosningar eru boðaðar seint í október. Er þetta veruleg fylgisaugkning hjá VG.
Að sama skapi tapar Sjálfstæðisflokkurinn nokkru fylgi, fer úr rúmum 29% niður í 23% og fengi 15 menn kjörna.
Framsóknarflokkurinn tapar hálfu prósenti, fengi 11% og 7 menn kjörna. Samfylkingin myndi auka fylgi sitt, færi upp í 8% úr 5,7*% og fengi 5 þingmenn.
Flokkur fólksins mun ná eftirtektarverðum árangri í kosningunum ef miðað er við þessa könnun sem færir honum 9% fylgi og 5 þingmenn. Viðreisn fer niður í 6% en fær 3 menn kjörna. Miðað við þessa könnun þurrkast Björt framtíð hins vegar út af þingi og fengi aðeins 3% atkvæða.