fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Vilja loka verksmiðju United Silicon: Íbúar hafa fundið fyrir astma-einkennum og öðrum óþægindum

Ágúst Borgþór Sverrisson
Föstudaginn 18. ágúst 2017 23:16

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök anstæðinga stóriðju í Helguvík, ASH, hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að verksmiðju United Silicon í Helguvík verði lokað. Hluti íbúa á Reykjanesi hafi ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna mengunar frá verksmiðjunni sem gangi þvert á starfsleyfi hennar og sé ólíðandi.

„Ef marka má hluta íbúa þá hafa þeir upplifað verulega skert lífsgæði vegna starfsemi United Silicon þar sem þeim er í sumum tilfellum haldið í gíslingu innandyra og geta ekki haft glugga opna. Þá hefur hluti íbúa fundið fyrir líkamlegum einkennum eins og auknum astmaeinkennum, hæsi, þurrk í hálsi og sviða í augum svo fátt eitt sé nefnt. Stjórn samtakanna telja það því með öllu óljóst að mengun frá United Silicon sé skaðlaus heilsu manna,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni.

Samtökin telja mikilvægt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður til að koma í veg fyrir frekari mengun. Yfirlýsingin er svohljóðandi:

Stjórn samtaka andstæðinga stóriðju í Helguvík, tekur undir með bæjarráði Reykjanesbæjar að hluti íbúa Reykjanesbæjar hafi ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan, vegna mengunar sem gengur þvert á forsendur starfleyfis verksmiðju United Silicon í Helguvík og að það sé með öllu ólíðandi.

United Silicon hefur ítrekað lofað bót og betrun á starfsemi sinni án árangurs og nú síðast þegar stjórn United Silicon lagði áherslu í yfirlýsingu sinni að vilji hennar væri að reka fyrirtækið í sátt við nærumhverfið. Í sömu yfirlýsingu bendir stjórn United Silicon á mælingaráætlun NILU sem bendir til þess að ekki séu í útblæstrinum frá verksmiðjunni efni sem skaðleg geta verið heilsu manna. Ef marka má hluta íbúa þá hafa þeir upplifað verulega skert lífsgæði vegna starfsemi United Silicon þar sem þeim er í sumum tilfellum haldið í gíslingu innandyra og geta ekki haft glugga opna. Þá hefur hluti íbúa fundið fyrir líkamlegum einkennum eins og auknum astmaeinkennum, hæsi, þurrk í hálsi og sviða í augum svo fátt eitt sé nefnt. Stjórn samtakanna telja það því með öllu óljóst að mengun frá United Silicon sé skaðlaus heilsu manna.

Stjórn samtakanna tekur jafnframt undir það að hluta með bæjarráði Reykjanesbæjar að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun frá United Silicon. Stjórn United Silicon telur hinsvegar að stöðvun verksmiðjunnar myndi ekki skila neinum árangri m.a. um áframhald rannsókna og hagsmuni kröfuhafa.

Varðandi áframhald rannsókna þá hefur verksmiðjan verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá henni, þrátt fyrir liðsinni hóps sérfræðinga sem hafa verið þar að störfum undanfarið. Umhverfisstofnun hafnaði fyrr á þessu ári beiðni United Silicon um 6 mánaða frest (sem senn líður undir lok núna þrátt fyrir að hafa aldrei verið veittur) til að koma mengunarmálum hjá sér í lag. Samtökin mótmæla því að fyrirtækinu verði veittur frekari frestur til rannsókna þar sem ekki liggur fyrir samþykki íbúa um að vera tilraundýr í slíkum rannsóknum. Málið er ósköp einfalt, annað hvort virkar verksmiðjan eða hún virkar ekki, og hefur hún ekki virkað frá því ofninn var ræst í nóvember 2016.

Varðandi hagsmuni kröfuhafa þá er þessi verksmiðja þeirra áhætta frá upphafi til enda og þeir bera ríka samfélagslega ábyrgð í þessu máli.

Stjórn samtakanna skorar á yfirvöld að rekstur United Silicon verði stöðvaður með hagsmuni stórs hluta íbúa Reykjanesbæjar að leiðarljósi svo koma megi í veg fyrir frekari mengun frá United Silicon og frekari skerðingu á lífsgæðum íbúanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi