fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fréttir

Íslendingar í Stokkhólmi beðnir um að láta vita af sér

Forsætisráðherra Svíþjóðar, staðfestir að árásin hafi verið hryðjuverk

Kristín Clausen
Föstudaginn 7. apríl 2017 14:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Íslenskir íbúar og ferðamenn í Stokkhólmi eru hvattir til að láta ættingja sína og fjölskyldu vita af sér eftir að vörubíl var keyrt inn á Drottningargötu, sem er þekktasta verslunar- og göngugatan í miðborg Stokkhólms í dag. Töluvert fleiri eru slasaðir. Margt er óljós í málinu og lögreglan gefur lítið upp. Staðfest er að 5 hafi látist í árásinni og 8 til viðbótar séu slasaðir. Fólki er ráðlagt að halda sig frá miðborginni. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, segir að um hryðjuverk sé að ræða. Ráðist hafi verið á Svíþjóð.

Vegna fregna af meintri árás á Drottninggatan hvetjum við Íslendinga í Stokkhólmi að halda sig frá miðbænum, sérstaklega svæðunum í kringum Centralstationen, Hötorget og Fridhemsplan, miðað við upplýsingar sem sendiráðinu hafa borist.

Hvetjum fólk einnig til að fylgjast vel með fréttum í sænskum fjölmiðlum og virða tilmæli lögreglu í hvívetna. Við hvetjum fólk einnig til að láta vini og ættingja vita af sér og þar sem álag á símakerfið er mikið mælum við með því að þeir sem geta noti netið til þess.

Ef aðstoðar er þörf má hafa samband við Borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins í síma 545-9900 eða farsíma +46(0)708818533.

Athugið að búið er að loka ýmsum svæðum í miðbænum og fréttir hafi einnig borist af því að vissar lestar- og strætisvagnaleiðir séu lokaðar.

Urður Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytsins, segist í samtali við RÚV vonast til að Facebook gefi fólki kost á því að merkja sig inn sem öruggt. Hún hvetur fólk til að nýta sér það.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“

Trump ekki í hátíðarskapi – Harðlega gagnrýndur fyrir að ala á sundrungu – „Ég hata þá“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Opna Múmínhúsið í Kjarnaskógi formlega – Viðræður við rétthafa gengið vel

Opna Múmínhúsið í Kjarnaskógi formlega – Viðræður við rétthafa gengið vel
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum

Þorbjörg Sigríður vill þyngja refsingar í ofbeldismálum
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hundur Magnúsar talinn hafa farist með honum í sjóslysinu

Hundur Magnúsar talinn hafa farist með honum í sjóslysinu