fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Lögreglumenn í felum fyrir utan vændishús Alexanders: Vændiskaupendur sögðu ekkert að óttast

Alexander lét skjólstæðinga stofnunarinnar vita af óboðuðum heimsóknum

Björn Þorfinnsson
Miðvikudaginn 20. desember 2017 10:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Alexander Manrique Elíasson, sem liggur undir grun um að hafa skipulagt vændisstarfsemi í íbúð við Fiskakvísl í Ártúnsholti, hóf skipulagningu starfseminnar á meðan hann starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur. Þetta herma öruggar heimildir DV. Alexander hætti störfum hjá hinni opinberu stofnun í apríl á þessu ári en hálfu ári síðar var hann handtekinn ásamt eiginkonu sinni í tengslum við rannsókn málsins.

Þá höfðu þrjár stúlkur frá Perú selt blíðu sína í nokkrar vikur í íbúðinni sem var leigð á nafni Alexanders. Við húsleit var lagt hald á tölvur, síma og um þrjár milljónir króna í reiðufé.

Alvarleg trúnaðarbrot í starfi

DV hefur heimildir fyrir því að Alexander hafi haft uppi háleitar hugmyndir um starfsemina. Hann ætlaði að leggja undir sig íslenska vændismarkaðinn. Meðal annars lét hann búa til nafnspjöld sem auglýstu starfsemina og var ætlunin að dreifa þeim sem víðast meðal þeirra sem hafa áhuga á að nota slíka þjónustu.

Samkvæmt heimildum DV hefur lögregla það til rannsóknar að fleiri en Alexander tengist skipulagningu vændisstarfseminnar og beinist sú rannsókn út fyrir landsteinana.

Alexander gerðist sekur um alvarleg trúnaðarbrot í starfi sínu fyrir Barnavernd Reykjavíkur. Herma heimildir DV að hann hafi reynt að koma sér í mjúkinn hjá hjónum sem þekkja vel til í íslenska vændisheiminum. Hjónin voru undir smásjá barnaverndaryfirvalda.

DV hefur heimildir fyrir því að Alexander hafi látið hjónin vita um óboðaðar eftirlitsferðir stofnunarinnar á heimili þeirra sem og upplýst þau um hverjir hefðu tilkynnt þau til Barnaverndar. Blaðamaður DV hafði samband við umrædd hjón en neituðu þau því staðfastlega að slík atburðarás hefði átt sér stað eða hafa átt samskipti við Alexander. Því næst slitu þau samtalinu.

Kemur fram að hálftími kosti 250 evrur, eða 31 þúsund krónur, en klukkustund kosti 350 evrur, eða 43 þúsund krónur.

Neyddist til að hætta

Eins og kom fram í fyrri frétt DV af málinu var Alexander vel liðinn meðal samstarfsmanna sinna hjá Barnavernd og var starfsfólk í uppnámi yfir meintri aðkomu hans að vændisstarfsemi. Í umfjöllun Ríkisútvarpsins um málið fullyrti Halldóra Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaverndar Reykjavíkur, að Alexander hefði verið farsæll í starfi.

Í skriflegu svari til DV sagðist Halldóra ekki kannast við að meinbugir hafi verið á vinnu Alexanders hjá Barnavernd Reykjavíkur. Þá hafi starfslok hans ekki á neinn hátt tengst meintri vítaverðri háttsemi. Annað segja heimildir DV en þær herma að kvartanir hafi borist vegna framgöngu hans sem hafi orðið til þess að Alexander neyddist til að láta af störfum. Þá hafði Barnavernd verið látin vita af því að Alexander hefði hlotið dóm sem ungur maður.

Heillaði húsráðendur

Vændishúsið var staðsett í Fiskakvísl og tók Alexander hana á leigu í eigin nafni. Eins og ástatt er á íslenskum fasteignamarkaði var íbúðin umsetin þegar hún bauðst til útleigu og voru á annan tug einstaklinga sem sóttust eftir því að taka íbúðina á leigu.

Fjölmargir voru boðaðir í viðtöl. Alexander mætti í slíkt viðtal og heillaði eigendur íbúðarinnar með persónutöfrum sínum. Hann varð hlutskarpastur um íbúðina, skrifaði undir leigusamning og breytti íbúðinni umsvifalaust í hóruhús. DV hefur heimildir fyrir því að eigendur íbúðarinnar séu miður sín vegna málsins og hafi átt erfitt með svefn fyrstu dagana. Báðust eigendur íbúðarinnar undan viðtali við DV og vilja gleyma málinu sem fyrst.

Klukkutími á 43 þúsund krónur

Í Fiskakvísl var vændisstarfsemi rekin.
Fiskakvísl Í Fiskakvísl var vændisstarfsemi rekin.

Áhugasamir vændiskaupendur gátu pantað tíma hjá perúsku konunum í gegnum símanúmer eða á tölvupóstfangi. Með skjótri leit á netinu koma strax í ljós fjölmargar síður þar sem þjónustan er auglýst, til dæmis á vændissíðunni alræmdu City of Love. Þá er þjónusta þeirra einnig rædd á hinni viðurstyggilegu vefsíðu chansluts. Þar ræða sumir viðskiptavinirnir þjónustuna, hvort myndirnar af konunum séu ekta og hvort verðið sé sanngjarnt. Kemur fram að hálftími kosti 250 evrur, eða 31 þúsund krónur, en klukkustund kosti 350 evrur, eða 43 þúsund krónur.

Þá var vefsíðan ice6secret.com sett í loftið á meðan vændisstarfsemin var í gangi. Með einfaldri leit má sjá að Alexander var skráður lénshafi fyrir síðunni sem var sett í loftið fyrir um 10 vikum.

Varaði við lögreglunni

Rúmum mánuði áður en Alexander og eiginkona hans voru handtekin og starfsemin upprætt birti einn notandi chansluts viðvörun á síðunni. Segist hann hafa ætlað að fara að hitta konurnar en tekið þá eftir óeinkennisklæddum lögreglumönnum sitjandi úti í bíl skammt frá. Forðaði maðurinn sér á hlaupum og vildi meina að annaðhvort væri lögreglan byrjuð að fylgjast með konunum eða þá að um gildru væri að ræða. Aðrir notendur sem höfðu nýtt sér þjónustuna blésu á þessi varnaðarorð og sögðu að ekkert væri að óttast. Allt hefði gengið eins og í sögu hjá þeim.

Líklegt er að yfirvöld muni hafa samband við þessa menn, en það hefur komið fram að lögreglan lagði hald á skrá yfir viðskiptavini Alexanders og verða þeir boðaðir í skýrslutöku á næstunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út

Spáir ekki dropa úr lofti í Reykjavík fyrr en í maí – Sumarið lítur sérstaklega vel út
Fréttir
Í gær

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí

Stofna góðgerðarfélag til minningar um Þuríði Örnu – Blásið til tónleikaveislu 1. maí
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat