fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Móðirin handtekin: Sjö ára sonurinn hafði gengist undir 13 aðgerðir – en það var ekkert að honum

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 14. desember 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar hinn sjö ára gamli Christopher var rétt orðinn sjö ára hafði hann farið 323 sinnum til læknis og gengist undir þrettán stórar aðgerðir. Hann hafði fengið súrefni, verið í hjólastól og fengið næringu í gegnum slöngu.

Móðir Christophers, hin 34 ára Kaylene Bowen, var þess fullviss að sonur hennar væri sárlasinn og sagði hún hverjum sem vildi hlusta að Christopher þjáðist af genagalla og krabbameini og þyrfti auk þess á lungnaígræðslu að halda. En svo kom á daginn að Christopher var ekkert veikur, raunar var hann við hestaheilsu.

Kaylene var handtekin síðastliðinn miðvikudag vegna gruns um að stefna barninu sínu í hættu. Faðir drengsins, Ryan Crawford, heldur því fram við bandaríska fjölmiðla að Kaylene þjáist af svokölluðu Munchausen-heilkenni en það tekur til þeirra sem gera sér upp veikindi, í sumum tilfellum hjá sjálfum sér en í öðrum tilfellum hjá ástvinum, yfirleitt börnum.

Læknar hafa skoðað Christopher að undanförnu og hann virðist ekkert sérstaklega frábrugðinn öðrum heilbrigðum börnum á þessum aldri. Sjálfur segist Ryan setja spurningamerki við heilbrigðisstarfsfólk í Texas, að læknar og aðrir sem komu að umönnun drengsins hafi ekki orðið þess áskynja að eitthvað óeðlilegt væri í gangi.

„Hvernig er hægt að framkvæma þrettán aðgerðir? Af hverju setti enginn spurningamerki við fimmtu aðgerðina? Sjöttu aðgerðina? Sjálfur segist Ryan hafa talað fyrir daufum eyrum félagsmálayfirvalda þegar hann reyndi að upplýsa starfsfólk þar að drengurinn hans væri við góða heilsu. Í staðinn var honum meinað að hitta son sinn.

Kaylene á yfir höfði sér fangelsisdóm vegna málsins og hefur Ryan farið fram á að fá forræðið yfir syni þeirra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi