fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Þetta þurfa bíleigendur að vita: Costco ódýrast þrátt fyrir 20 prósenta hækkun

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 23. október 2017 18:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Félag íslenskra bifreiðaeigandi framkvæmdi fyrir skemmstu verðkönnun á rafgeymum. Ódýrasta rafgeyminn má nálgast í Costco þrátt fyrir að fyrirtækið hafi hækkað verð síðan í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu sem FÍB sendi frá sér.

„Nú styttist óðum í að vetur konungur gengur í garð og margur bíleigandinn hefur eflaust þegar komið að bílnum sínum straumlausum eftir frostkalda nótt eða á eftir að gera það. Haustið er nefnilega sá árstími sem best leiðir í ljós veikleika rafgeymisins í bílnum og hvort tími sé kominn til að endurnýja hann. En hvað kostar nýr rafgeymir í algengustu fólksbílana?“ segir í tilkynningunni.

Þar segir að hringt hafi verið í söluaðila og spurt um verð á 60 Ah rafgeymi sem er í venjulegan meðalstóran fimm manna fjölskyldubíl af tegundinni Ford Focus. Í raun er um að ræða dæmigerðan fjölskyldubíl. Flestir geymarnir eru 60 Amperstundir en nokkrir eru afkastameiri, eða allt upp í 65 Amperstundir eins og sést á myndinni hér að neðan.

Verðbilið sem geymarnir í þessari verðkönnun FÍB spannar er frá 12.119 krónur pg upp í 22.901 krónu. Sá ódýrasti er Bosch rafgeymirinn hjá Costco á 12.119 krónur en sá er 60 Amperstundir. Í könnuninni er ekki tekið tillit til hvaða þjónusta er í boði á hverjum stað fyrir sig, að því er segir í tilkynningu FÍB.

„Talsverðar breytingar, þá aðallega til lækkunar, hafa orðið frá síðustu rafgeymaverðkönnun FÍB sem gerð var 14. október 2014. Þá kostaði ódýrasti rafgeymirinn 14.995 kr. en sá dýrasti kostaði 26.560 kr. Frá þeim tíma hefur vegið meðaltal af gengi helstu gjaldmiðla gagnvart krónu lækkað um 20%. Þann 1. janúar 2015 lækkaði almennt þrep virðisaukaskatts úr 25,5% í 24% og á sama tíma voru vörugjöld á rafgeyma m.a. lögð af. Innkoma Costco síðasta vor hefur einnig haft áhrif á markaðinn. Costco hefur reyndar hækkað verðið á Bosch 60 Ah rafgeyminum um ríflega 21% frá því í vor en þá kostaði hann 9.999 kr. Hjá Vöku kostar Bosch 60 Ah rafgeymir 15.990 kr og hjá Kemi kostar sami geymir 17.188 kr. Athygli vekur að ódýrasti rafgeymirinn 2014 var Exide 62 Ah hjá Bauhaus sem kostaði 14.995 kr. en þessi sami geymir kostar í dag hjá Bauhaus 21.295 kr.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi