fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Við þurfum að slátra Angóla“

Gunnar Magnússon segir jafnteflið setja næsta leik í nýtt samhengi – Mætum þreyttum Makedónum

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 17. janúar 2017 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Geir hefur spilað eins vel og hann getur úr þeim spilum sem hann hefur,“ segir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka og fyrrverandi aðstoðarlandsliðsþjálfari í handknattleik, í samtali við DV. Ísland hefur spilað þrjá leiki á HM í handbolta án þess að vinna. Það gerðist síðast á stórmóti 2004.

Eftir tap í ágætum fyrsta leik við Spán fylgdi annað svekkjandi tap í háspennuleik gegn Slóvenum. Á sunnudaginn spiluðu strákarnir við Túnis og skildu liðin jöfn, þegar upp var staðið. Liðið er því með eitt stig í riðlinum. Skammt er stórra högga á milli því ef liðið hefði skorað marki meira í tveimur síðustu leikjum væri liðið með þrjú stig af sex mögulegum.

Mikil reynsla inni á milli

„Ég gerði væntingar um að vinna leikinn við Túnis. Það voru ákveðin vonbrigði að klára það ekki og taka bæði stigin,“ segir Gunnar í samtali við DV. Hann segir að leikmennirnir hafi verið sjálfum sér verstir. „Við vorum komnir í þannig stöðu að við áttum að klára þetta.“ Hann segir að ekki sé hægt að kenna reynsluleysi um hvernig liðið spilaði úr lokamínútunum en liðið fékk á kafla seint í leiknum nokkur tækifæri til að komast þremur mörkum yfir. „Inni á milli eru þarna menn með mikla reynslu. Samt má segja að við höfum verið heppnir að missa þetta ekki niður í tap.“

Angóla-leikurinn í nýju ljósi

Hann segir að jafnteflið setji Angóla-leikinn, sem fer fram í dag (þriðjudag), í allt annað samhengi. Liðið þurfi helst að vinna þann leik með miklum mun til að setja sig í vænlega stöðu gagnvart Túnis í baráttunni um þriðja sætið í riðlinum. Vinni Ísland Makedóníu og Angóla, gæti baráttan um þriðja sætið staðið á milli Túnis og Íslands. Liðin eru jöfn í innbyrðis viðureignum svo þá skiptir markatalan máli.

Gunnar segir að fyrirfram hefði mátt líta á Angóla-leikinn sem leik þar sem hægt væri að hvíla lykilmenn. Gjörbreytt staða sé uppi nú. „Við þurfum að slátra Angóla til að tryggja okkur í haginn og verða fyrir ofan Túnis. Það er himinn á haf á milli þess að komast í 16 liða úrslit en að spila við lélegustu liðin á HM í President cup,“ segir Gunnar en þess má geta að fjögur efstu liðin í þessum sex liða riðli komast í 16 liða úrslit. Allt bendir til þess að liðið sem hafnar í fjórða sæti mæti Frakklandi í 16 liða úrslitum. Það vill enginn. Liðið sem hafnar í þriðja sæti í okkar riðli gæti mætt Noregi – og þar liggja möguleikar Íslands að mati Gunnars. En til þess þarf Ísland að vinna bæði Angóla og Makedóníu.

Gunnar bendir á að Makedónar spili við Spán seint á miðvikudagskvöld, en Íslendingar hvíla þann dag. Það sé ótvíræður kostur fyrir Ísland þegar liðin mætast í þýðingarmiklum leik á fimmtudag. Makedónar verði þreyttari en við. „Vörn og markvarsla hefur verið í góðu lagi. Ef við höldum áfram að bæta okkur fram að þessum leik þá held ég að við vinnum Makedóníu. Við þurfum hins vegar að treysta á að Slóvenía vinni Makedóníu og Túnis.“

Þeir ungu eru öflugir

Ungu strákarnir fjórir, sem eru á sínu fyrsta stórmóti, hafa komið með kraft inn í liðið. Þannig átti Janus Daði Smárason frábæra kafla á móti Túnis, þar sem hann fór stundum illa með varnarmennina. „Við vorum í gær [sunnudag] að stilla upp fyrir Janus og mér fannst hann koma sterkur inn.“

Þá segir hann ánægjulegt að sjá hvað Arnar Freyr Arnarsson hafi komið öflugur inn í liðið. Ómar Ingi Magnússon og Bjarki Már Elísson hafi einnig átt fínar innkomur.

„Ég er sáttur við hann“

Hann er ánægður með Geir Sveinsson. „Mér finnst hann hafa gert vel. Þetta er ekki auðveld staða. Mér finnst hann dreifa álaginu vel og gefa mönnum séns. Ég er sáttur við hann.“ Hann segist þó setja spurningarmerki við ástandið á sumum leikmönnum liðsins og nefnir þar Ásgeir Örn Hallgrímsson, sem eigi augljóslega nokkuð í land. Hann sé þó að gefa sig allan í verkefnið, fyrir land og þjóð. „Eins hefði ég viljað hafa rétthenta skyttu með Ólafi Guðmundssyni. Við lendum stundum í vandræðum þegar Rúnar er sá eini sem er að skjóta á níu metrum.“ Hann nefnir Sigurberg Sveinsson, Tandra Má Konráðsson og Adam Hauk Baumruk, sem menn sem geti skotið fyrir utan. „Geir hefur spilað eins vel og hann getur úr þessu.“

Ekki skjóta of snemma

Spurður hvað liðið þurfi að bæta segir Gunnar að vörn og markvarsla hafi verið góð á mótinu. „Grunnurinn er til staðar. Ég veit að við getum lagað sóknarleikinn á stuttum tíma. Spurning um að spila lengur í kerfunum og fá aðeins meira flot á boltann. Við þurfum að vera þolinmóðari og ekki svona fljótir að skjóta. Þá fáum við betri færi. Ég er viss um að Geir og strákarnir eru að ræða þessa hluti.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi