fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Tveir kepptu um forstjórastól VÍS

Valið stóð á milli Jakobs Sigurðssonar og Sigurðar Hannessonar – Samstaða náðist í stjórninni í síðustu viku

Ritstjórn DV
Föstudaginn 2. september 2016 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar tilkynnt var um afkomu VÍS á fyrstu sex mánuðum ársins á fimmtudaginn í síðustu viku, sem var talsvert undir væntingum bæði hvað varðar vátryggingar- og fjárfestingastarfsemi, varð ljóst að dagar Sigrúnar Rögnu Ólafsdóttur í stóli forstjóra tryggingafélagsins væru taldir. Samstaða náðist þá innan fimm manna stjórnar VÍS, sem hafði um langt skeið verið undir þrýstingi frá ýmsum hluthöfum sem vildu sjá breytingar til að reyna að rétta við dræma afkomu félagsins, um að stíga það skref að ráða nýjan forstjóra í hennar stað. Á fundi með stjórninni síðastliðinn sunnudag var Sigrúnu Rögnu tilkynnt um uppsögnina og sama dag gengið frá samkomulagi við Jakob Sigurðsson um að taka við sem forstjóri VÍS.

Þrátt fyrir að nöfn margra stjórnenda úr viðskiptalífinu og á fjármálamarkaði hafi komið til umræðu, bæði hjá einstökum stjórnarmönnum og á meðal stærstu hluthafa félagsins, þá voru það í reynd aðeins tveir sem komu til greina sem eftirmenn Sigrúnar Rögnu þegar endanleg ákvörðun var tekin um að segja henni upp störfum. Auk Jakobs var það Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri eignastýringar Kviku banka og einn helsti ráðgjafi stjórnvalda vegna áætlunar um losun fjármagnshafta sem var kynnt sumarið 2015, sem valið stóð á milli og boðaði stjórnin þá báða í viðtöl með skömmum fyrirvara um liðna helgi, samkvæmt heimildum DV. Í kjölfarið ákvað stjórnin sem fyrr segir að ráða Jakob, forstjóra Promens á árunum 2011 til 2015, í starf forstjóra VÍS eins og greint var frá í tilkynningu frá félaginu síðastliðinn mánudag.

Var í veikri stöðu

Sú ákvörðun að skipta um forstjóra VÍS, en Sigríður Ragna var eini kvenforstjóri fyrirtækis sem er skráð í Kauphöll Íslands, kom fæstum aðilum á markaði á óvart enda hafði verið uppi þrálátur orðrómur um langa hríð að staða hennar væri afar veik. Afkoma VÍS af tryggingahluta rekstrarins þótti óviðunandi á síðasta ári og þá hefur ávöxtun af fjárfestingaeignum félagsins verið talsvert lakari í samanburði við tryggingafyrirtækin Sjóvá og TM. Það sem af er ári hefur sú staða ekki tekið breytingum og þrátt fyrir að innlend bókfærð iðgjöld VÍS hafi hækkað um 11,6% á milli ára þá var tap af frjálsum og lögboðnum ökutækjatryggingum á fyrri árshelmingi. Erfitt árferði á hlutabréfamörkuðum gerði það jafnframt að verkum að tekjur af fjárfestingastarfsemi – fjárfestingaeignir félagsins nema tæplega 34 milljörðum króna – drógust saman um 70% og námu aðeins 636 milljónum króna á tímabilinu.

Með nýjum einkafjárfestum sem komu inn í félagið sem stórir hluthafar á síðasta ári varð sú krafa enn háværari að ráðast þyrfti í breytingar á rekstri VÍS – og jafnframt stokka upp í stjórn félagsins – til að rétta við stöðuna. Þannig keypti félagið Óskabein ehf., sem samanstóð meðal annars af Gesti B. Gestssyni, fjárfesti og eiganda Sparnaðar, og Andra Gunnarssyni, lögmanni og eins eigenda Kea-hótela, ríflega 5,5% hlut í VÍS í lok október 2015 fyrir nærri 1.300 milljónir króna sé miðað við þáverandi gengi bréfa í tryggingafélaginu. Fyrir áttu félög í eigu hjónanna Guðmundar Arnar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur liðlega 5% hlut í VÍS og þá keyptu Sigurður Bollason fjárfestir og DonMcarthy, breskur fjárfestir og fyrrverandi stjórnarformaður House of Fraser, stóran hlut í félaginu í mars síðastliðnum í gegnum eignarhaldsfélagið Grandier. Í dag eru þeir stærstu einkafjárfestar VÍS með ríflega 8% eignarhlut.

Tíðar breytingar á stjórn VÍS

Tíðar breytingar hafa verið á stjórn VÍS á síðustu misserum sem hefur oftar en ekki mátt rekja til ósamstöðu á meðal þeirra sem hafa skipað stjórnina hverju sinni. Í aðdraganda aðalfundar VÍS í mars 2015 tilkynnti þáverandi stjórnarformaður, Hallbjörn Karlsson, að hann myndi ekki gefa kost á sér og í ágústmánuði sama ár sagði Steinar Þór Guðgeirsson hæstaréttarlögmaður sig jafnframt óvænt úr stjórn. Óánægja með að tillögur um að breyta fjármagnsskipan félagsins með útgáfu víkjandi skuldabréfs, líkt og TM hafði áður gert, hafi ekki náð fram að ganga voru á meðal ástæðna fyrir brotthvarfi Steinars úr stjórninni.

Í nóvember í fyrra var síðan boðað til hluthafafundar að ósk hjónanna Guðmundar og Svanhildar og voru þeir Guðmundur og Jostein Sørvoll, fulltrúi félagsins Óskabein, þá kjörnir sem nýir stjórnarmenn í VÍS. Guðmundur staldraði hins vegar stutt við og dró framboð sitt til baka í aðdraganda þess að aðalfundur VÍS fór fram í apríl á þessu ári. Á þeim fundi komu þau Helga Hlín Hákonardóttir, lögmaður og ráðgjafi, Benedikt Gíslason, verkfræðingur og fyrrverandi ráðgjafi fjármálaráðuneytisins, og Reynir Finndal Grétarsson, forstjóri Creditinfo, ný inn í stjórnina. Fyrir voru þau Herdís Fjeld og Jostein í stjórn VÍS.

Skuldsettir einkafjárfestar

Sumir þessara fjárfesta, meðal annars félagið Óskabein, höfðu fjármagnað kaup sín í VÍS að stærstum hluta með bankaláni og því höfðu þeir mikla hagsmuni af því að tryggingafélagið myndi skila sem fyrst bættri afkomu svo arðgreiðslur úr félaginu gætu dugað til að standa skil á fjármagnskostnaði hluthafa vegna kaupanna. Sú ákvörðun stjórnar VÍS fyrr á árinu að lækka boðaða arðgreiðslu til hluthafa úr 5 milljörðum í ríflega 2 milljarða, eftir mikla gagnrýni sem kom upp vegna fyrirhugaðra arðgreiðslna tryggingafélaganna þriggja, mæltist því afar illa fyrir hjá mörgum stærstu einkafjárfestum félagsins.

Þótt einhverjir í hópi stærstu hluthafa VÍS hafi viljað sjá breytingar á forstjórastóli félagsins fljótlega eftir að ný stjórn var kjörin í apríl á þessu ári, þar sem inn komu þrír nýir stjórnarmenn, þá var ljóst að ekki var samheldni í stjórninni um að fara í þær breytingar á þeim tíma. Þannig var það ekkert launungarmál að sumir stjórnarmenn, meðal annars Herdís Fjeldsted, formaður stjórnar félagsins í umboði Lífeyrissjóðs verslunarmanna, voru hikandi við að grípa til slíkra aðgerða í ljósi þess að Sigrún Ragna væri eini kvenforstjóri félags í Kauphöllinni. Þá vildi Norðmaðurinn Jostein Sørvoll, varaformaður stjórnar VÍS og einn þeirra fjárfesta sem stóð að baki Óskabeini, jafnframt lengst af að stjórnin myndi sýna Sigrúnu Rögnu þolinmæði og gefa henni tíma til að snúa við rekstri félagsins, samkvæmt heimildum DV. Sú afstaða hans tók hins vegar nýlega breytingum og samstaða náðist um að binda endi á fimm ára veru Sigrúnar Rögnu í stóli forstjóra.

Hækkun eftir forstjóraskipti

Gengi bréfa í VÍS hafa hækkað nokkuð eftir að stjórn félagsins tilkynnti að Sigrún Ragna myndi láta af störfum og Jakob tæki við sem forstjóri. Þannig hækkaði gengi bréfa í félaginu í gær um 3,31% og hafa þá hækkað í verði um tæplega 5% í vikunni. Það sem af er ári hafa þau hins vegar lækkað um 7,17%, lítillega meira en úrvalsvísitala Kauphallarinnar. Viðskipti með bréf í VÍS í gær námu samtals 1.435 milljónum króna, eða sem nemur um 7,5% af markaðsvirði félagsins, en á meðal þeirra sem keyptu voru Jakob Sigurðsson og Reynir Finndal Grétarsson, stjórnarmaður í VÍS.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi