28 prósent kosningabærra manna höfðu kosið í Reykjavíkurkjördæmi norður klukkan 15 í dag samanborið við 25 prósent á sama tíma í síðustu kosningum, sumarið 2012. Kjörsókn í dag hefur verið nokkuð meiri í nær öllum kjördæmum landsins miðað við á sama tíma í síðustu kosningum.
RÚV greinir frá þessu.
Í Reykjavíkurkjördæmi norður höfðu 12.850 manns kosið klukkan 15 en í Reykjavíkurkjördæmi suður höfðu 13.225 kosið. Það gerir 29 prósent kjörsókn en á sama tíma í síðustu kosningum höfðu 27,69 prósent kosið.
Svipaða sögu er að segja af öðrum kjördæmum. Klukkan 15 var kjörsókn í Suðvesturkjördæmi 29,2 prósent, Suðurkjördæmi 30,56 prósent, Norðvesturkjördæmi 39,48 prósent en hafa ber í huga að þær tölur eru frá klukkan 16 í dag. Á Akureyri höfðu 29,93 prósent kosið klukkan 15.