Lagabreyting um fullnustu refsinga ekki smíðuð í kringum Kaupþingstoppanna
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir nýlega lagabreytingu um fullnustu refsinga ekki vera sérsniðna í kringum sakborninga í hrunsmálunum. Þingmenn geti ekki hagað störfum sínum eftir neikvæðu áliti almennings á tilteknum föngum.
Líkt og DV greindi frá fyrr í dag munu Kaupþingsmennirnir Sigurður Einarsson, Magnús Guðmundsson og Ólfur Ólafsson losna úr haldi á Kvíabryggju í dag eftir eins árs afplánun ,en þeir fengu fjögurra og fjögurra og hálfs árs dóma. Verða þeir færðir á áfangaheimilið Vernd og tekur svo við rafrænt eftirlit að þeirri vist lokinni.
Lagabreytingin, sem kemur frá allsherjarnefnd, varð að lögum þann 23. mars síðastliðinn og felur í sér að heimild fyrir rafrænu eftirliti dómþola utan fangelsis er aukin. „Mér fannst þessi lagabreyting ekki tímabær í ljósi stöðunnar varðandi þessa tilteknu fanga. Þetta virtist vera smíðað utan um þá,“ er haft eftir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, nefndarmanni í allsherjarnefnd og þingmanni VG.
Fram kemur á vef RÚV að Helgi Hrafn segi ákveðins miskilnings gæta í umfjöllun um lagabreytinguna. Hann greiddi sjálfur atkvæði með tillögunni. „Alveg eins og þingmenn geta ekki hagað lögum þannig að tilteknir fangar sleppi fyrr út þá geta þeir heldur ekki hagað lögum eftir vinsældum tiltekinna fanga.“
Helgi segir jafnframt að starfshópur hafi verið skipaður af nefndinni til að fara yfir tillögu um að föngum, sem ekki hefðu framið gróft eða alvarlegt brot, yrði sömuleiðis veitt heimild til að afplána sína refsingu undir rafrænu eftirliti. Hópnum er gert að skila inn áliti sínu þann 1.j úlí næstkomandi.